140. löggjafarþing — 46. fundur,  20. jan. 2012.

afturköllun ákæru á hendur Geir H. Haarde, fyrrv. forsætisráðherra.

403. mál
[13:50]
Horfa

Ragnheiður Ríkharðsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Nú langar mig að spyrja hv. þingmann vegna þess að í ákærunni og við ákærutilbúning var lengi vel horft til fundar sem haldinn var í febrúar með formanni bankastjórnar Seðlabankans, forsætisráðherra, utanríkisráðherra og fjármálaráðherra þar sem vísað var til stærðar bankakerfisins og þess hruns sem virtist blasa við. Til þessa fundar er oftast vísað sem upphafspunkts þess aðgerðaleysis, hirðuleysis sem ráðherrarnir voru sakaðir um. Hins vegar gaf Seðlabankinn út heilbrigðisvottorð í maí sama ár með þeim bönkum sem hann varaði við á þessum margfræga fundi í febrúar. Ég spyr hv. þingmann hvort hann telji ekki koma til greina í yfirferð, ef af verður, að skoða þetta frekar.