afturköllun ákæru á hendur Geir H. Haarde, fyrrv. forsætisráðherra.
Herra forseti. Já, ég hef séð þann rökstuðning og ég er ósammála honum vegna þess að ég tel að það sem segir í greinargerð með frumvarpinu um landsdóm, þar sem beinlínis er tekið fram að Alþingi hafi ekki frekari skipti af þessu máli eftir að það hefur verið kosið til saksóknara, standi óhaggað, þar hafi ekkert komið fram sem breyti því.
Seinni tíma skýringar koma fram um málið nú þegar það er í algleymingi, hinu er nánast vippað til hliðar eins og það sé dauður bókstafur. Menn fara hér í einhverjar lagaflækjur og vísa í önnur lög máli sínu til staðfestingar. Ég tel ekki að menn hafi fært sannfærandi rök fyrir því að það sem var viðtekinn skilningur þeirra sem stóðu að lagasetningunni, sömdu frumvarpið og hugsuðu það í þaula á sínum tíma sé ekki réttur, ég tel ekki að komið hafi fram neinn rökstuðningur um að þeirri kennisetningu sé kollvarpað, ekki heldur í þeim skrifum sem hv. þingmaður vísaði til í máli sínu.