afturköllun ákæru á hendur Geir H. Haarde, fyrrv. forsætisráðherra.
Hæstv. forseti. Það eru tvö atriði sem ég ætla að staldra við í ræðu hv. þm. Eyglóar Harðardóttur, (Gripið fram í.) það eru tvö atriði sem ég kem að á örstuttum tíma en mun fleiri atriði sem ástæða væri til að gera athugasemdir við.
Það eru eiginlega tvær spurningar sem vakna þegar ég hlýði á mál hv. þm. Eyglóar Harðardóttur. Annars vegar er að hún er þeirrar skoðunar að tillaga hv. þm. Bjarna Benediktssonar leiði efnislega til rangrar niðurstöðu. Gott og vel, ég er ósammála því mati en telur hv. þm. Eygló Harðardóttir ástæðulaust að það mál, rök hv. þm. Bjarna Benediktssonar og gagnrök, m.a. frá henni sjálfri, fái umfjöllun í þinginu, í þingnefnd svo dæmi sé tekið? Er ekki rétt að taka þetta mál eins og önnur þingmál, frumvörp og þingsályktunartillögur, sem hingað koma inn og fjalla um það í þingnefnd, taka afstöðu eftir yfirlegu þar, eftir atvikum gestakomur, umsagnir eða eitthvað, frekari umræðu en okkur gefst kostur á í dag, til að taka þá efnislega afstöðu?
Er nægilegt, hv. þingmaður eða hæstv. forseti svo ég beini máli mínu til hans, að maður sé á móti efnislegri niðurstöðu máls til að telja að það eigi að vísa því frá? (ÓÞ: Góð spurning.)