140. löggjafarþing — 46. fundur,  20. jan. 2012.

afturköllun ákæru á hendur Geir H. Haarde, fyrrv. forsætisráðherra.

403. mál
[18:34]
Horfa

Skúli Helgason (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Auðvitað er það grundvallarregla í réttarkerfi okkar að einstaklingur njóti réttlátrar málsmeðferðar. Við deilum um hvort það sé hlutverk Alþingis við þessar aðstæður að stíga inn og fara í efnislega meðferð þessa máls. Ég sé ekki hvernig hægt er að komast hjá því ef við ætlum að fara með umræðu um málið í þingnefnd og taka afstöðu til þess hvort forsendur hafi breyst. Ég bendi á að bæði saksóknari og landsdómur hafa nú þegar skoðað það og komist að þeirri niðurstöðu að ákæran sé enn þá reist á gildum grunni þrátt fyrir að tveir af þessum sex ákæruliðum hafi verið teknir út.

Ég tel að málið sé í réttum farvegi, það sé hlutverk saksóknara á hverjum tíma og síðan landsdóms að taka ákvörðun um hvort forsendur ákæru hafi brostið, en að hlutverk Alþingis einskorðist við það héðan í frá að stíga inn ef fram koma nýjar upplýsingar sem kollvarpa grundvelli upphaflegu ákærunnar.