140. löggjafarþing — 46. fundur,  20. jan. 2012.

afturköllun ákæru á hendur Geir H. Haarde, fyrrv. forsætisráðherra.

403. mál
[18:35]
Horfa

Pétur H. Blöndal (S):

Frú forseti. Við ræðum tillögu til þingsályktunar um afturköllun ákæru á hendur Geir H. Haarde, fyrrverandi hæstv. forsætisráðherra.

Menn sæta ábyrgð með ýmsum hætti í þjóðfélaginu. Þeir sem stela, beita ofbeldi eða eitthvað slíkt, eru ákærðir og settir í fangelsi ef þeir reynast vera sekir. Í stjórnmálum er önnur leið til að bera ábyrgð. Hún er sú að t.d. ráðherrar eru beittir vantrausti, að Alþingi samþykki vantraust á viðkomandi ráðherra og þar með axlar hann sína ábyrgð og hættir, jafnvel sjálfviljugur, sem líka hefur gerst vegna þrýstings. Svo standa stjórnmálamenn frammi fyrir kjósendum og þurfa að axla ábyrgð gagnvart þeim og eru þá væntanlega kolfelldir ef þeir hafa staðið sig illa. Þetta er um ábyrgð, stjórnmálalega og sakamálalega.

Þá er það spurningin um þrískiptingu valdsins og hið furðulega fyrirbæri, landsdóm. Hér kom hæstv. efnahags- og viðskiptaráðherra, landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra og ég veit ekki hvað fleira, frú forseti, og hvatti til þess að menn vísuðu málinu frá vegna þess að það mundi meiða þrískiptingu valdsins. Það var sérstaklega skemmtilegt að hlusta á hæstv. ráðherra tala vegna þess að hann er nefnilega framkvæmdarvaldið, en hann er jafnframt löggjafarvaldið, sem er einmitt ljóður á þrískiptingu valdsins. Þessi sami maður er bæði framkvæmdarvald og löggjafarvald. Hann sem ákærandi var líka hluti af dómsvaldinu með því að ákæra hæstv. forsætisráðherra, Geir H. Haarde. Hann greiddi atkvæði með því alveg hikstalaust, þá var hann kominn í þrjú hlutverk, sem ákærandi og einnig kominn í framkvæmdarvaldið.

Þessi umræða um þrískiptingu valdsins er dálítið undarleg vegna þess að landsdómur er ekki hluti af dómskerfinu. Átta af 15 dómendum í landsdómi eru kosnir af Alþingi, af löggjafarvaldinu, þannig að málareksturinn er þvílíkt pólitískur og getur varla verið mikið meira.

Ég ætla að ræða aðeins um 70. gr. stjórnarskrárinnar.

Nú er verið að tala um að breyta stjórnarskránni og er kannski rétt að glugga pínulítið í þá gömlu og sjá hvað hún segir. Þar stendur, með leyfi frú forseta:

„Öllum ber réttur til að fá úrlausn um réttindi sín og skyldur eða um ákæru á hendur sér um refsiverða háttsemi með réttlátri málsmeðferð innan hæfilegs tíma fyrir óháðum og óhlutdrægum dómstóli.“

Ég fullyrði að allt í þessu máli meiðir 70. gr. stjórnarskrárinnar. Í fyrsta lagi er þetta ekki óháð ákæra. Hverjir ákærðu hæstv. fyrrverandi forsætisráðherra? Það voru andstæðingar hans og samherjar í pólitík fyrr og síðar. Það voru andstæðingar hans sem æstu sig í þessum ræðustól gagnvart honum sem forsætisráðherra, eins og sjónvarpsáhorfendur muna örugglega. Þeir voru ekki sáttir við hvernig hann vann o.s.frv. Svo lenda þeir í því að ákæra hann. Er það einhvern veginn óháð?

Í venjulegu sakamáli mundi saksóknari víkja ef hann væri í þeirri stöðu að vera mjög náinn þeim sem á að ákæra eða mjög mikill andstæðingur hans, svo maður tali nú ekki um pólitík. Þetta er því ekki óháður og óhlutdrægur dómstóll.

Svo gerist það, frú forseti, sem er alveg með eindæmum, að málið er ekkert rannsakað. Aldrei. Fyrrverandi hæstv. forsætisráðherra, Geir H. Haarde, var aldrei kallaður fyrir þá nefnd sem ákærði hann. Alþingi kallaði hann heldur ekki fyrir. Hann var ákærður sisvona og fékk ekkert að verja sig áður en hann var ákærður eða að segja skoðun sína á ákærunni. Hann fékk meira að segja lengi vel ekki að vita um hvað ákæran snerist, þannig að þetta mál brýtur öll lögmál réttarríkisins.

Allir þingmenn voru settir í það hlutverk að ákæra og mér var það afskaplega óljúft að vera settur í það hlutverk, ég bauð mig fram á Alþingi sem löggjafarvald en ekki sem ákærandi. Ég lenti í því hlutverki. Þá gerir maður kröfu til þess að málið sé fyrsta lagi rannsakað og svo þarf maður að kanna hvort sá sem ákærður er sé líklega sekur, því að það er eitt af grundvallaratriðum í ákæruvaldinu að menn geti ekki ákært einhvern út í bláinn. Hér hefur meira að segja komið fram sú furðulega ástæða hjá hv. þm. Merði Árnasyni að ekki megi menn ræna þeim rétti til að bera af sér sök.

Nú ætti maður að lesa bloggið sem finna má um alla netheima. Þar er stöðugt verið að ákæra fólk fyrir þetta og hitt — notuð eru orð eins og glæpalýður og fleira. Hvar mundum við enda ef taka ætti eitthvað af þessum ákærum og keyra þær í gegn án þess að rannsaka þær og segja svo við þann ákærða: Ja, þú átt bara gott, þú getur þá borið af þér sök? Hvar endum við, frú forseti?

Menn setja málið í dóm, það er hluti af ákærunni, síðan er refsing. Þá er það spurningin hvert hlutverk refsingar er yfirleitt. Það eru eiginlega fjórar ástæður sem ég sé fyrir refsingu. Fyrsta er betrun. Annað er geymsla, það á að geyma og fjarlægja viðkomandi glæpamann úr samfélaginu. Þriðja er fæling, að aðrir geri ekki það sama. Og fjórða er hefnd, hrein og klár hefnd, auga fyrir auga, tönn fyrir tönn. Heilu þjóðfélögin byggja á þeirri refsigleði, sem ég kalla. Við höfum reynt að halda okkur við betrunina, en það fer ekki úr huga mér að í þessu máli sé það hefnd og reiði sem liggur að baki því að þessi maður, þessi einstaklingur, var ákærður.

Svo var spurt: Af hverju kom þessi tillaga ekki fyrr fram? Það er vegna þess að það er ekki fyrr en núna sem það kemur í ljós að vissir þingmenn hafa skipt um skoðun á réttmæti ákærunnar, hvort það hafi verið sanngjarnt og rétt að ákæra þennan mann einan af fjórum. Þess vegna kemur málið núna fram vegna þess að ákærandinn, Alþingi, hefur skipt um skoðun á því hvort ákæra eigi alla fjóra eða einn mann.

Svo hefur komið í ljós að hrunið varð ekki bara á Íslandi, það varð um allan heim. Vandræðin í Evrópu, í Grikklandi. Ég þarf ekki að nefna það. Írland er í svo vondum málum vegna þess að menn beygðu sig fyrir fjármagninu, fyrir bönkunum. Menn beygðu sig fyrir bönkunum en það gerði hæstv. fyrrverandi forsætisráðherra ekki. Geir H. Haarde beygði sig ekki fyrir fjármagninu.

Það er dálítið ankannalegt að það voru einmitt vinstri menn sem ákærðu hann fyrir að hafa ekki beygt sig fyrir fjármagninu.

Svo stóð fyrrverandi hæstv. forsætisráðherra fyrir því að setja neyðarlög. Hann er ákærður fyrir að hafa ekki gert neitt. Hann setti neyðarlögin sem sennilega hafa bjargað Íslandi frá þvílíkum hörmungum að ég hef reynt að ímynda mér hvað hefði annars gerst en ég get það ekki. Þar koma fyrir hugtök eins og hungursneyð o.s.frv. vegna þess að þegar menn geta ekki borgað erum við orðin svo háð þessum kerfum að við getum eiginlega ekki lifað.

Ég hugsa að sagan muni dæma hæstv. fyrrverandi forsætisráðherra miklu betur en landsdómur nokkurn tímann.

Síðan kom hv. þm. Magnús Orri Schram upp í ræðu. Hann hefur verið mjög ákafur í að kæra. Hann sagði — ég hef það eftir honum munnlega: Ég hef enga sérstaka hagsmuni af því að fyrrverandi forsætisráðherra verði dæmdur. Þannig skildi ég málflutning hans.

Bíðum nú við. Hvað gerist ef við föllum frá ákærunni? Hvað gerist ef ekkert mál verður? Þá munu allir spyrja: Af hverju í ósköpunum varst þú að ákæra? Hann hefur mikla hagsmuni af því að málið fari til enda og að hæstv. forsætisráðherra verði dæmdur. Það hafa mjög margir þingmenn í þessum þingsal, vegna þess að þeir sögðu já við þessari furðulegu ákæru, þar sem er verið að breyta pólitískri ábyrgð yfir í sakamál. Ég hugsa að þeir hafi allir hagsmuni af því að málið fari þann veg.