140. löggjafarþing — 46. fundur,  20. jan. 2012.

afturköllun ákæru á hendur Geir H. Haarde, fyrrv. forsætisráðherra.

403. mál
[19:03]
Horfa

Illugi Gunnarsson (S) (andsvar):

Frú forseti. Það var auðvitað verra að þingmaðurinn missti af ræðu minni. Eitt af því sem ég nefndi um forsendur fyrir því að taka þetta mál á dagskrá — það er alveg rétt sem hv. þingmaður hefur bent á, spurningin er: Hafa komið fram nýjar staðreyndir? Það er líka annað, og um það fjallaði ég í ræðu minni, nefnilega sú spurning hvort það komi fram nýr skilningur á fyrirliggjandi staðreyndum. Það má ljóst vera að, eins og ég fór nokkuð ítarlega yfir í ræðu minni, að möguleikar ríkisstjórna bæði í Evrópu og Bandaríkjum Norður-Ameríku til að minnka bankakerfi sín voru minni en menn gerðu sér grein fyrir. Sá skilningur hefur vaxið mjög á undanförnum missirum.

Jafnframt benti ég á það í ræðu minni að afstaða manna til Icesave-málsins, bæði innan lands og erlendis, um réttarstöðu okkar Íslendinga hefur þróast mjög í þá átt að menn hafa sagt að Ísland hafi enga lagalega ábyrgð borið á þessum reikningum. Þó að erlend ríki hafi með offorsi og yfirgangi sótt að íslenskum hagsmunum og þar með valdið okkur Íslendingum miklu tjóni og miklum vanda er það að mínu mati heldur ekki grundvöllur fyrir því að lögsækja Geir H. Haarde.

Þetta er dæmi, virðulegi forseti, um það hvernig skilningur manna á ákveðnum atriðum hefur þroskast og dýpkað og getur verið grundvöllur þess að menn breyti um afstöðu til þess hvort það hafi verið rétt að ákæra Geir H. Haarde. Það geta verið mörg önnur rök fyrir því en þessi nefndi ég sérstaklega.

Við getum deilt hér um form þessa máls, í hvaða nefndir á að vísa því o.s.frv., en mestu skiptir að mínu mati að hér náist málefnaleg niðurstaða og að vilji þingsins komi skýrt fram.