140. löggjafarþing — 46. fundur,  20. jan. 2012.

afturköllun ákæru á hendur Geir H. Haarde, fyrrv. forsætisráðherra.

403. mál
[21:22]
Horfa

Árni Páll Árnason (Sf):

Virðulegi forseti. Fyrirkomulag landsdóms er sannarlega óvenjulegt í réttarkerfi Íslands þar sem Alþingi fer með ákæruvald. Ég er sammála því þegar fólk segir að Geir H. Haarde eigi ekki að njóta nokkurra sérréttinda umfram aðra sakborninga í landinu en með sama hætti má hann ekki njóta minni réttinda en aðrir sakborningar í landinu. Því er ómótmælt að sakamálaréttarfar landsins gerir ráð fyrir að allir sakborningar megi njóta þeirra réttinda að ákæruvald leggi efnislegt mat á ástæður til að breyta ákæru allt fram til þess tíma er dómur gengur í máli.

Ég get ekki staðið að því að neita þessum sakborningi um þann rétt sem allir aðrir sakborningar í landinu eiga rétt á að njóta. Hver efnisleg niðurstaða Alþingis verður er svo allt annað mál.