140. löggjafarþing — 47. fundur,  24. jan. 2012.

varamaður tekur þingsæti.

[13:31]
Horfa

Forseti (Ásta R. Jóhannesdóttir):

Eins og tilkynnt var á vef þingsins í gær, 23. janúar, barst bréf frá Árna Þór Sigurðssyni, 5. þm. Reykv. n., um að hann gæti ekki sótt þingfundi næstu þrjár vikur vegna starfa erlendis á vegum Alþingis.

Í gær tók sæti á Alþingi Auður Lilja Erlingsdóttir. Hún hefur áður tekið sæti á Alþingi og er boðin velkomin til starfa á ný.