140. löggjafarþing — 47. fundur,  24. jan. 2012.

tollalög.

367. mál
[18:56]
Horfa

Pétur H. Blöndal (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir ræðuna og kynningu á frumvarpi til laga um breytingu á tollalögum.

Ég vil spyrja hana um úrskurðinn, að hann skuli gilda í sex ár frá birtingardegi. Hvað gerist ef lögum er breytt í millitíðinni? Gildir úrskurðurinn þá óbreyttur áfram í sex ár, punktur? Ég hef alltaf skilið það þannig að hann gilti þangað til lögunum yrði breytt. Gæti þetta ákvæði valdið því að þetta yrði neglt niður í sex ár?

Svo er það innflutningur með netsendingum, þ.e. vörur sem keyptar eru af netmiðlum, sem ég tel vera mjög mikilvægt að örva. Ég vil spyrja hæstv. ráðherra hvort þær breytingar sem er verið að gera á tollafgreiðslu á vörum sem pantaðar eru á netinu muni flýta fyrir afgreiðslu og gera kaupin jafnvel meira aðlaðandi og ekki eins dýr. Mér skilst á fólki að þar séu ákveðin gjöld sem geri smásendingar mjög dýrar og algjörlega ósamkeppnisfærar. Ég tel mjög brýnt að fjármálaráðuneytið vinni að því hörðum höndum að gera vöruinnflutning á netinu sem liprastan vegna þess að í því felst mikil samkeppni við innlenda verslun sem veitir stundum — ég segi stundum — ekki af samkeppni.