140. löggjafarþing — 48. fundur,  25. jan. 2012.

hlutafélög og einkahlutafélög.

191. mál
[15:38]
Horfa

Tryggvi Þór Herbertsson (S):

Virðulegi forseti. Við ræðum hér frumvarp til laga um breytingu á lögum um hlutafélög og lögum um einkahlutafélög. Þetta frumvarp er til bóta. Ef það verður að lögum, sem er gert á grundvelli ESB-tilskipunar, hefur það að markmiði að létta stjórnsýslulegar byrðar sem hvíla á hlutafélögum og einkahlutafélögum í tilviki samruna eða skiptingar. Þetta er allt saman gott og blessað og við fengum á fund nefndarinnar helstu endurskoðendur landsins og ríkisskattstjóra og Samtök atvinnulífsins. Allir lýstu sig fylgjandi þessum breytingum og töluðu um að þetta mundi vissulega ná því markmiði að létta stjórnsýslulegum byrðum af hlutafélögum og einkahlutafélögum. Mér finnst þess virði að fagna því að þetta skuli koma fram vegna þess að það sem við þurfum í dag er að grisja þann frumskóg sem fyrirtækin eru stödd í um þessar mundir með sífellt meiri lögum og reglugerðum. Þó að þetta sé kannski ekki stórt mál er þetta samt skref í rétta átt og er tvímælalaust í þá átt að grisja þennan frumskóg sem ég talaði um áðan.

Við, fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í efnahags- og viðskiptanefnd, höfum tekið ákvörðun um að styðja þetta frumvarp, að þetta sé hið besta mál og horfi til framfara. Þar af leiðandi skrifum bæði ég og hv. þm. Guðlaugur Þór Þórðarson undir þetta nefndarálit með meiri hluta efnahags- og viðskiptanefndar.