hækkun á kvóta Íslands hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum.
Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir nefndaráliti frá minni hluta efnahags- og viðskiptanefndar, sem er reyndar aðeins einn þingmaður af níu, um hækkun á kvóta Íslands hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum. Allir hv. þingmenn Vinstri grænna samþykkja hækkun á kvóta Íslands hjá AGS án þess að vera með fyrirvara. Sú staðreynd afhjúpar hvernig stefnumál eins og andstaðan við AGS er gefin upp á bátinn um leið og sest er í valdastólana. Áður en VG fór í ríkisstjórn var flokkurinn einarður andstæðingur AGS, enda stríðir stefna sjóðsins gegn uppbyggingu velferðarsamfélagsins.
Virðulegi forseti. Ég mun ekki samþykkja hækkun kvóta Íslands hjá AGS af tveimur ástæðum. Í fyrsta lagi vil ég í stað þess að taka 9,3 milljarða og leggja þá inn á innstæðureikning okkar hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum taka þessa 9,3 milljarða og skila þeim. Þeir eru núna inni í gjaldeyrisvarasjóði og bera þar háa vexti eða um 5,5% vexti en ef við tökum þá af gjaldeyrisvarasjóðsreikningi okkar í New York og færum upphæðina suður til Washington DC munu vextirnir fara niður í 0,14%. Þetta þýðir um 450 millj. kr. vaxtamun sem skattgreiðendur þurfa að taka á sig.
Hin ástæðan fyrir því að ég get ekki samþykkt þessa kvótahækkun er sú að ég tel að það þurfi grundvallarbreytingar á efnahagsstefnu Alþjóðagjaldeyrissjóðsins en sjóðurinn gerir skilyrði um að lántökulandið innleiði sína efnahagsstefnu í kjölfar bankahruns.
Virðulegi forseti. Ég ætla að gera aðeins betur grein fyrir ástæðu þess að ég treysti mér ekki til að samþykkja kvótahækkunina. Eins og ég hef sagt áður var það skilyrði fyrir lánveitingu íslenska ríkisins hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum að ríkissjóður næði jafnvægi í ríkisfjármálum á fimm ára tímabili. Að vísu er búið að lengja þetta tímabil um eitt ár en halli ríkissjóðs í byrjun árs 2009 var um 15% af vergri landsframleiðslu. Þetta tel ég að hafi verið of hraður niðurskurður á ríkisútgjöldum og hef gagnrýnt það frá því að ég settist á þing. Ástæðan er sú að þessi niðurskurður fer í rauninni þvert á ástæðu þess að við erum með fjármálakreppu hér á landi. Skilyrðið um að innleiða svokallaða efnahagsstefnu Alþjóðagjaldeyrissjóðsins tekur ekkert tillit til þess hvort efnahagssamdráttinn eða kreppuna megi rekja til breytinga í raunhagkerfinu eða til minnkandi efnahagsreikninga.
Efnahagsreikningar samanstanda eins og allir vita af eignum og skuldum og í kjölfar bankahruns myndast ójafnvægi þar sem eignir lækka í verði og jafnvel hverfa á meðan skuldir hækka, ekki síst í efnahagskerfi þar sem ríkir verðtrygging á flestum lánveitingum. Á Íslandi er rót efnahagsvandans að finna í efnahagsreikningum fyrirtækja og heimila, a.m.k. þess efnahagsvanda sem við er að etja í dag. Samdráttur af völdum minnkandi efnahagsreikninga breytist mjög fljótt í langvarandi kreppu ef við grípum ekki strax og nógu lengi til mótvægisaðgerða.
Á Íslandi voru heimilin hvött til þess að taka út séreignarsparnað sinn til að tryggja eftirspurn í hagkerfinu, sérstaklega á árinu 2011. Sú úttekt á séreignarsparnaði hefur magnað upp ójafnvægið á efnahagsreikningum heimilanna þar sem heimilin hafa í gegnum þá úttekt verið að ganga á eignir sínar til að ná endum saman. Á sama tíma hafa skuldir hækkað vegna verðtryggingarinnar, en hún hefur tryggt það að verðbólguskotið fari beint til hækkunar á höfuðstólum fasteignalána.
Þegar eignabóla springur, eins og gerðist hér eftir hrun, vilja skuldsett fyrirtæki og heimili gera allt til að losa sig við skuldir enda hafa eignirnar á bak við skuldirnar rýrnað verulega í verði. Fyrirtæki og heimili nota því sparnað sinn til að greiða niður skuldir en það minnkar efnahagsreikninga bankanna og þar með umsvif þeirra. Við slíkar aðstæður vilja fáir taka lán og erfitt er að breyta hegðun fólks og fyrirtækja með vaxtalækkun eins og Seðlabanki Íslands hefur verið að gera, a.m.k. fram til haustsins 2011. Ástæðan fyrir því að erfitt er að breyta hegðun fólks, jafnvel með vaxtalækkun, er sú slæma reynsla sem fólk og fyrirtæki hafa af skuldsetningu fyrir hrun vegna þess að sú skuldsetning hefur orðið fyrir forsendubresti.
Einkageirinn mun ekki við slíkar aðstæður hætta að greiða niður lán í stað þess að fjárfesta. Það er reyndar það sem við höfum verið að sjá eftir hrun að hér hefur fjárfesting verið mjög lítil og er lengi að taka við sér þrátt fyrir að rúm þrjú ár séu frá því að bankarnir hrundu. Reynslan í Japan sýnir að einkageirinn, þ.e. fyrirtæki og heimili, fjárfestir ekki eftir að hafa orðið fyrir því að verðmæti eigna þeirra hafi lækkað verulega fyrr en ljóst er orðið að nýjar fjárfestingar muni ekki fela í sér sambærilegan forsendubrest. Það má eiginlega segja, virðulegi forseti, að trú fyrirtækja og fólks á fjárfestingum hafi fokið út í veður og vind við það hrun sem varð hér í október 2008 og við því þarf að bregðast.
Bankahrun dregur verulega úr áhættusækni fyrirtækja og það tekur langan tíma að koma því í eðlilegt horf. Í hagkerfi eins og því íslenska þar sem gjaldeyrishöft eru við lýði og lífeyrissjóðirnir eru með mikið fé á hverju ári sem bæði þarf að fjárfesta og endurfjárfesta þá myndast mjög fljótt offramboð á lánsfjármagni og það eru þær aðstæður sem við höfum búið við eftir hrun. Það er sem sagt mikill skortur ekki á fjármagni til fjárfestinga heldur fjárfestingartækifærum sem eru arðbær og að mati margra fyrirtækja og einstaklinga áhættulaus, sem þau geta auðvitað aldrei verið.
Offramboðið á lánsfjármagni myndar þrýsting á stjórnvöld að selja fákeppnisfyrirtæki, því að þau eru auðvitað mjög arðbær þar sem ekki myndast markaðsverð á mörkuðum þar sem aðeins er pláss fyrir nokkur stór fyrirtæki og jafnvel bara eitt fyrirtæki. Við höfum séð þann þrýsting verða til hér. Nú þegar er töluverð umræða um það hvort selja eigi hluta af Landsvirkjun þannig að ríkið eigi um 60% og lífeyrissjóðirnir jafnvel allt upp í 40%.
Til að koma hér á eðlilegu ástandi þarf að leiðrétta þetta ójafnvægi milli virðis eigna og skulda og það verður ekki fyrr en búið er að því sem við komumst upp úr kreppuhjólförunum. Auk þess tala margir hagfræðingar um að ríkið þurfi að auka umsvif sín vegna þess að einkageirinn fjárfestir ekki nægjanlega og þau umsvif þurfi þá að fela í sér fjárfestingar í innviðum samfélagsins. Það væri þá ríkið en ekki einkageirinn sem tæki lán hjá sparifjáreigendum til að fjármagna fjárfestingar sem eiga að bæta upp skort á fjárfestingum einkageirans. Síðan yrði auðvitað dregið úr fjárfestingum ríkisins um leið og einkageirinn færi að taka við sér eða fá meiri trú á fjárfestingarmöguleikum í þessu hagkerfi.
Ef ríkið bregst við með því að draga úr umsvifum sínum, eins og AGS hefur gert kröfu um, getur í raun og veru ekkert komið í veg fyrir það að hagkerfið fari inn í það sem ég og fleiri höfum kallað neikvæðan spíral eða aðstæður þar sem er sífellt minni hagvöxtur og minnkandi efnahagsreikningar fyrirtækja og almennings.
Eins og ég sagði áður er rót efnahagsvandans ekki að finna í raunhagkerfinu, heldur fyrst og fremst í efnahagsreikningum fyrirtækja og heimila. Við slíkar aðstæður gerir efnahagsstefna Alþjóðagjaldeyrissjóðsins kreppuna miklu verri en hún þyrfti að vera og langdregnari. Efnahagsstefna Alþjóðagjaldeyrissjóðsins eykur líka á kreppuna eða samdráttinn þegar um er að ræða einhver áföll í raunhagkerfinu en yfirleitt er það áfall sem stendur stutt yfir og hefur ekki jafnvíðtæk áhrif á efnahagsreikninga fyrirtækja og heimila og þegar um er að ræða bankahrun eða áfall í fjármálageira hagkerfisins.
Virðulegi forseti. Þetta eru tvær ástæður fyrir því að ég treysti mér ekki til að fylgja meiri hlutanum í hv. efnahags- og viðskiptanefnd og samþykkja hækkun á kvóta Íslands hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum. Ég vil að við skilum hluta af þeim lánum sem við höfum fengið hjá sjóðnum á 5,5% vöxtum, skilum þeim hluta frekar en að leggja hann inn þar sem við fengum hann lánaðan til að gera okkur kleift að taka ekki bara lán heldur miklu hærri lán en við höfum fram til þessa tekið. Þess má geta að þegar við tókum síðast lán hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum tókum við tíu sinnum kvótann okkar, enda er varla til sú þjóð í heiminum sem er með jafnstóran skuldsettan gjaldeyrisvarasjóð og við, en hann er núna rúmir 1.000 milljarðar. Ég tel jafnframt að fara þurfi fram grundvallarbreyting á efnahagsstefnu Alþjóðagjaldeyrissjóðsins áður en hægt er að efla sjóðinn enn frekar með hækkun á framlögum til hans.