hækkun á kvóta Íslands hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum.
Virðulegi forseti. Ég ætla að byrja á því að þakka hv. þingmanni fyrir ágætisræðu og fyrir ágætisyfirlit yfir skoðanir þingmannsins á Alþjóðagjaldeyrissjóðnum.
Í byrjun árs 2010 minnir mig frekar en 2011 samþykktum við á Alþingi breytingar á atkvæðavægi í Alþjóðagjaldeyrissjóðnum. Hv. þm. Lilja Mósesdóttir greiddi því atkvæði sitt og ég gerði það líka. Þessar breytingar á kvótanum í stofnfénu eru í beinum tengslum við breytingarnar á atkvæðavæginu.
Hv. þingmaður hefur gefið ágætisástæður fyrir því af hverju hún vill ekki standa að þessari stofnfjáraukningu. Nú eiga 187 ríki aðild að Alþjóðagjaldeyrissjóðnum og 74 þeirra voru búin að samþykkja þessa stofnfjáraukningu fyrir nokkrum vikum og alltaf er að bætast í þann hóp. Það sem mig langar að spyrja hv. þingmann að er: Hver eiga skilaboðin frá okkur Íslendingum að vera? Eigum við að segja: Ja, við viljum taka þessa breytingu á atkvæðavægi til baka og vera með okkar upphaflega stofnfjárframlag — eða vill hv. þingmaður kannski að við segjum okkur úr lögum við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn og fáum jafnvel stofnféð til baka sem við getum þá t.d. notað til að greiða honum? Hvað vill þingmaðurinn? Að við segjum nei við þessu? Ef við segðum öll nei við því, hvað værum við að segja í raun og veru? Hvaða skilaboð værum við að senda?