140. löggjafarþing — 48. fundur,  25. jan. 2012.

hækkun á kvóta Íslands hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum.

304. mál
[16:32]
Horfa

Frsm. minni hluta efh.- og viðskn. (Lilja Mósesdóttir) (U) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ef ég man rétt komst hv. þingmaður að því, sem jafnframt er hagfræðingur, að við ættum fyrir skuldum í stórum dráttum. Það er meðal annars ástæðan fyrir því að ég var alltaf á móti lántökunni hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum. Ég var ekki sannfærð um að við þyrftum á því fjármagni að halda, sem endaði síðan allt inni á einhverri bankabók á lágum vöxtum í New York. Það er ein aðalástæðan fyrir því og eins að ég hafði miklar efasemdir um efnahagsstefnu AGS, eins og ég lýsti í framsögu minni fyrr í dag, ekki síst vegna þess að ég tel að efnahagsstefna sjóðsins taki ekki á rót vandans heldur afleiðingum vandans eða afleiðingum hrunsins, sem er þá mikil skuldsetning ríkissjóðs vegna þess að ríkið tekur á sig skuldir einkaaðila.

Ef við lítum á stöðuna innan lands er rót vandans hinir löskuðu efnahagsreikningar. Það er sem sagt eignabóla sem springur og virði eigna rýrnar þannig að ójafnvægi myndast á efnahagsreikningunum. Ég hef áhuga á að vita hvort hv. þingmaður sé sammála þeirri greiningu að þegar bankahrun verður í kjölfar þess að eignabóla springur sé mjög mikilvægt að skera ekki niður heldur að tryggja umsvif ríkisins í efnahagslífinu á meðan einkageirinn er að ná sér aftur á strik og öðlast traust á fjárfestingarmöguleikum.