140. löggjafarþing — 48. fundur,  25. jan. 2012.

hækkun á kvóta Íslands hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum.

304. mál
[16:34]
Horfa

Tryggvi Þór Herbertsson (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég og hv. þm. Lilja Mósesdóttir erum svona 90% sammála. (Gripið fram í.) Við segjum það með mismunandi orðum en erum sammála í þessum greiningum. Ég er algjörlega sammála hv. þingmanni um að gengið hafi verið helst til geyst í því að taka lán til að fjármagna gjaldeyrisvarasjóð. Meðal annars þess vegna gerði ég útreikninga á skuldabyrði Íslands til að reyna að greina þann vanda sem við stóðum frammi fyrir í kjölfar hrunsins og til þess að reyna að sjá hvað við þyrftum mikið af peningum. Það er mjög bagalegt að það hafi tekið svona langan tíma og að menn hafi jafnvel aukið lántöku, sem reyndist svo vera raunin.

Það var gert vegna þess að menn höfðu ekki nauðsynlegar upplýsingar, menn reiknuðu með að skuldastaðan væri mun verri hjá ríkissjóði en hún var. Það tel ég að hafi helgast mikið af því að menn voru alltaf að rugla saman einkaaðilum og hinu opinbera, að það hafi truflað myndina svolítið. Ég er algjörlega sammála hv. þingmanni um að þetta var of mikil lántaka og það er afar óheppilegt núna að við skulum ekki geta greitt þau lán hraðar niður, og eins að Norðurlöndin skuli gera kröfu á okkur að við borgum þeim um leið og Alþjóðagjaldeyrissjóðnum nú þegar við viljum borga lánin upp. Bræður okkar á Norðurlöndunum setja okkur í svolítið undarlega stöðu eins og gerðist einnig í aðdraganda hrunsins þegar þeir voru í raun litlir bandamenn okkar í staðinn fyrir (Forseti hringir.) að vera helstu bandamenn okkar eins og þeir hefðu átt að vera.