140. löggjafarþing — 48. fundur,  25. jan. 2012.

Stjórnarráð Íslands.

314. mál
[17:04]
Horfa

forsætisráðherra (Jóhanna Sigurðardóttir) (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég get ekki gefið nánari tímasetningar. Það er verið að vinna þetta í ráðherranefnd eins og ég upplýsti varðandi þessar breytingar. Ég geri ráð fyrir að það taki nokkrar vikur. Ég vona að það geti verið komið inn í þing í lok febrúar eða byrjun mars.