fjar- og dreifnám.
Virðulegi forseti. Ég og hæstv. menntamálaráðherra höfum nokkrum sinnum rætt hér um fjar- og dreifnám. Ég vil gjarnan halda því samtali áfram.
Ekki hefur verið mótuð nein sérstök opinber menntastefna um fjar- og dreifnám. Fagleg ábyrgð hefur verið hjá hverjum skóla og samstarf á milli skóla hefur verið takmarkað. Hæstv. menntamálaráðherra hefur þó reynt að koma á einhvers konar samstarfi, en ég held að við getum enn skilgreint það á þann veg að ekki sé nein opinber menntastefna um fjar- og dreifnám og samstarfið er takmarkað samkvæmt flestum leiðum sem skilgreina það.
Í apríl 2010 var skipaður starfshópur á vegum menntamálaráðuneytis um fjar- og dreifnám sem var falið að vinna að hugmyndum að breytingu á því í framhaldsskólum. Markmið hópsins var samkvæmt skýrslu að leita leiða til að auka framboð á fjar- og dreifnámi, gera það aðgengilegra, ýta undir samstarf á milli framhaldsskóla og þróa leiðir til að tryggja að gæði fjar- og dreifnáms yrði ekki síðra en í dagskólanámi. Ég held að á margan máta sé alveg hægt að yfirfæra þessi markmið líka á háskóla, að þar eigi að vera sambærileg markmið.
Hópurinn skilaði af sér skýrslu í september 2010. Í tillögum hópsins var lagt til að stutt yrði við þróun fjar- og dreifnáms með stefnumörkun í aðalnámskrá framhaldsskóla, miðlægri yfirsýn, samstarfi framhaldsskóla, gæðamálum og þjónustu við nemendur í framhaldsskólum, að dreif- og fjarnám yrði gert að aðgengilegri möguleika við hlið dagskólanáms og að boðið yrði upp á fjölbreyttara námsframboð í fjar- og dreifnámi, þ.e. að sú tegund af námi skyldi ná til þeirra sem ekki eiga þess kost að stunda dagskólanám í framhaldsskóla og að fjar- og dreifnám gæti áfram verið brú á milli skólastiga til að auðvelda fólki að halda áfram námi. Líka var talað um að mikilvægt væri að efla rannsóknir og þróun á fjar- og dreifnámi, auka framboð á símenntun fyrir kennara og efla faglegan stuðning við þá í starfi. Síðast en alls ekki síst — raunar held ég að sá þáttur sé alveg gífurlega mikilvægur — yrði gengið frá því í kjarasamningum milli Kennarasambands Íslands og fjármálaráðuneytisins hvernig ætti að skilgreina mat á vinnu kennara í fjar- og dreifkennslu.
Því vil ég gjarnan spyrja hæstv. menntamálaráðherra hvernig unnið hefur verið úr niðurstöðum starfshópsins á vegum ráðuneytisins.