mælingar á dilkakjöti og beitarrannsóknir í Skutulsfirði.
Í fyrsta lagi, frú forseti, varðandi niðurstöður mælinga á dilkakjöti sem var framleitt af bændum í Skutulsfirði er því til að svara að ekki voru gerðar mælingar á kjöti sem framleitt var á síðasta ári þar sem því fé var öllu slátrað eða fargað á viðkomandi býli vorið 2011. Það voru ekki til afurðir af því búfé sem slátrað var í sláturhúsum haustið 2010. Hins vegar lögðu bændur fram sýni af eigin birgðum sem voru mæld og síðan var mæld mjólk, bæði frá Engidal og nálægum fjörðum með hliðsjón af díoxínmengun. Matvælastofnun annaðist rannsóknirnar og skipaði einnig sérfræðihóp til að meta áhrif díoxínmengunar á framtíð búskapar í Engidal. Þær niðurstöður liggja fyrir opinberlega, birtust í áfangaskýrslu sem menn geta nálgast á heimasíðu Matvælastofnunar og ber heitið „Áhrif díoxínmengunar á framtíð búskapar í Engidal í Skutulsfirði“.
Helstu niðurstöður þessara mælinga voru þær að mæligildi voru við eða yfir leyfilegum hámarksmörkum eins og þau eru sett í reglugerð um aðskotaefni í matvæli og fóðri. Hins vegar lá og fyrir að afurðastöðvar mundu ekki taka við sláturdýrum að hausti og til marks um það er bréf frá Landssamtökum sláturleyfishafa.
Þá er svar við næstu spurningu, um hvort þessar niðurstöður hafi gefið tilefni til þess að slátra fé úr Engidal. Ugglaust hefur þessi grunur um mengun haft þar sín áhrif sem og líklegast að þegar fyrir lá sú afstaða afurðastöðva að taka ekki við afurðum frá búunum hafi það leitt til þess að þeir ákváðu að farga fé sínu.
Verða bændum á svæðinu greiddar bætur vegna þess að þeim var gert að slátra fé sínu? eins og fyrirspyrjandi orðar það.
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið telur ríkið ekki bótaskylt í þessu máli heldur hljóti bótakröfum eftir atvikum að verða beint að meintum mengunarvaldi. Það skal tekið fram að búfjáreigendum á svæðinu var ekki fyrirskipað að farga bústofni sínum með beinum hætti, en ljóst að þegar bann var lagt á sölu dýraafurða og nýtingu fóðurs sem aflað yrði á umræddu svæði mundi það ásamt með þeirri afstöðu sem ég áður vitnaði til frá sláturleyfishöfum væntanlega leiða til þess að búskapur var ekki raunhæfur.
Þetta bann í tilviki Efri-Engidals náði til afurða og fóðurs á lögbýlinu, auk afurða og fóðurs nokkurra annarra tómstundabænda.
Það er rétt að geta þess að þó hefur ýmislegt verið gert til að reyna að koma til móts við vanda þessara framleiðenda, þar á meðal beitti sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið sér fyrir breytingu á lögum nr. 99/1993, um framleiðslu, verðlagningu og sölu á búvörum, þannig að heimilt væri að greiða bændum á lögbýlum þar sem afurðasala væri bönnuð af ástæðum sem hlutaðeigandi framleiðandi gæti ekki haft áhrif á sjálfur áframhaldandi beingreiðslur og eftir atvikum gæðastýringargreiðslur. Þessi breyting á lögum var samþykkt á Alþingi 10. júní 2011 og fyrrnefnd heimild til áframhaldandi beingreiðslna samkvæmt þessum breytingum á búvörulögum hefur verið nýtt fyrir áðurnefnt lögbýli, auk þess sem heimild til greiðslu gæðastýringarálags hefur verið nýtt hjá framleiðanda á svæðinu sem aðild að gæðastýrðri sauðfjárframleiðslu.
Banni þessu við sölu afurða og nýtingu fóðurs sem hér hefur verið upplýst um hefur nú verið aflétt og getur búskapur því af þeim ástæðum hafist í Engidal. Sala afurða mundi þó eingöngu ná til framleiðslu sem hefst eftir að banninu var aflétt og hið sama mundi gilda um nýtingu fóðurs.
Loks er spurt um niðurstöður beitarrannsókna í fyrrasumar í Engidal í Skutulsfirði.
Svarið er að Matvælastofnun skipaði sérfræðihóp í ársbyrjun 2011 til að meta áhrif díoxínmengunar á framtíð búskapar í Skutulsfirði og í framhaldinu stóð stofnunin ásamt Landssamtökum sauðfjárbænda að beitartilraun. Það má sömuleiðis finna niðurstöður þeirra tilrauna á heimasíðu stofnunarinnar. Þar koma fram hin tölulegu gildi.
Helstu niðurstöður eru þær að ekki virðist tilefni til að ætla að sauðfé taki lengur upp mikið magn díoxíns í gegnum beit á svæðinu þó að mengun sé enn til staðar. Rannsóknaniðurstöður sýna nú ekki mengun yfir aðgerðamörkum eða hámarksgildum og telst svæðið nú henta aftur til fjárbúskapar og annars búfjárhalds, en tekið er sérstaklega fram að vakta þurfi afurðir í fyrstu ef búskapur yrði tekinn upp að nýju og þetta á einkum við um kýr og hross sökum þess að þar liggur lengri beitartími að baki áður en afurðir eru nýttar.
Það skal svo upplýst að kostnaður við þessar rannsóknir er þónokkur. Til dæmis kostar greining á hverju díoxínsýni (Forseti hringir.) um 130 þús. kr. og sýnafjöldi þarf að vera umtalsverður fyrir hverja hjörð til að gefa marktækar niðurstöður þannig að það er alveg ljóst að því getur fylgt nokkur kostnaður að fylgjast með því að þarna séu hlutirnir aftur komnir í það lag að þarna megi stunda búskap.