mælingar á dilkakjöti og beitarrannsóknir í Skutulsfirði.
Frú forseti. Hv. þm. Vigdís Hauksdóttir staðnæmdist sem oftar við Evrópusambandið og hinn skaðlega eftirlitsiðnað sem þaðan væri sprottinn, en ég vil líta á þetta mál af öðrum sjónarhóli og segja einfaldlega að við Íslendingar ætlumst væntanlega til þess, og viljum, að svona hlutir séu í lagi hjá okkur og komi ekki upp. Þó að hið háa Evrópusamband hefði jafnvel aldrei verið fundið upp vildum við væntanlega ekki frekar en ella taka áhættu í sambandi við það að menguð matvæli bærust á okkar borð.
Varðandi það sem hér er rætt um skaðabótaskyldu endurtek ég það sem mér finnst liggja í hlutarins eðli, mengunarvaldurinn er auðvitað gerandinn og frumorsakavaldurinn hér. Það hlýtur að vera eðlileg nálgun að beina bótakröfum í fyrstu umferð að honum. Ég hef hina mestu samúð með þessum bónda, hvern ég þekki ekkert, en hef fylgst með málinu, og fleirum sem þarna hafa orðið fyrir áhrifum. Samúð sem maður getur haft með svona aðstæðum réttlætir hins vegar ekki að gangast við og viðurkenna fyrir fram og að óathuguðu máli bótaskyldu ríkisins. Til þess hef ég ekkert leyfi frekar en aðrir menn við svona aðstæður. Það verður þá að reyna á það eftir öðrum leiðum nema hún liggi fyrir, sé augljós og heimilt að bregðast við í samræmi við það.
Það hefur verið reynt að sýna sanngirni hér, m.a. í gegnum það sem áður kom fram um að heimila beingreiðslur þrátt fyrir þessar aðstæður. Það má líta á það sem ákveðinn vilja stjórnvalda til þess fyrir sitt leyti að gera gott úr málum.
Ég tek heldur ekki undir að þarna hafi yfirvöld farið offari. Mér finnst liggja í hlutarins eðli að þegar meint alvarleg atvik af þessu tagi koma upp hljóti menn að taka þau alvarlega. Það væri miklu frekar gagnrýnisvert ef menn gerðu það ekki. Svo má margt segja um aðdraganda málsins og þær undanþágur sem Íslendingar grétu út í þessum efnum og er kannski ekkert til að vera sérstaklega stoltur af.