fíkniefnaneysla ungmenna og forvarnir.
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. velferðarráðherra svör hans og tek undir með honum, þetta er því miður eilífðarverkefni. Eins og kom fram í máli hans hefur okkur tekist ágætlega. Okkur hefur tekist ágætlega að undanförnu vegna þess að við höfum hvergi slakað á klónni — hvergi nokkurs staðar. Við höfum haldið öllum upplýsingum til haga. Háskólinn á Akureyri og Lýðheilsustöð hafa unnið að miklum rannsóknum. Háskólinn á Akureyri hefur meira að segja verið með alþjóðlegar rannsóknir á þessu sviði sem hann hefur verið lofaður fyrir. Ég hvet því hæstv. velferðarráðherra til að slaka hvergi á klónni.
Ég vil að lokum þakka fyrir alla þá umræðu sem hefur farið fram um lýðheilsumál og þá helst það er snertir börn okkar og unglinga. Það þarf að taka til í nokkrum málaflokkum, sérstaklega hvað varðar tannskemmdir. Ég held að sykurneyslan sé þar stærsti áhrifavaldurinn. Við eigum að ræða það opinskátt áður en vandamálið verður jafnstórt og það er orðið, veit ég, í Bandaríkjunum. Bretar hafa tekið þetta mál og rætt það mikið. Þetta mál snýr að börnunum okkar, eins og áður hefur komið fram, og svo sem ekki miklu við það að bæta. Ég þakka þeim sem tóku þátt í umræðunni og vonandi getum við rætt þessi mál öll saman og þá væntanlega á jákvæðari nótum en í dag.