heilsufarsmælingar í Skutulsfirði.
Hæstv. forseti. Hv. þm. Einar K. Guðfinnsson hefur beint til mín spurningu um hvaða niðurstaða hafi orðið úr þessum heilsufarsmælingum á íbúum Skutulsfjarðar og starfsmanna sorpbrennslustöðvarinnar Funa vegna ætlaðrar mengunar frá stöðinni. Það má segja um þetta mál í heild, sem kom fram fyrr í umræðunni, að sem betur fer virðist sem betur hafi farið þar en menn óttuðust eða á horfðist um tíma. Í desember árið 2010 mældist díoxín yfir leyfilegum mörkum í kúamjólkursýni frá bænum Engidal í Skutulsfirði eins og kunnugt er. Frekari rannsóknir á mjólk, kjöti og heyi frá Engidal og einnig mjólk frá mjólkurbýlum í aðliggjandi fjörðum leiddi í ljós að tvö sýni frá býlinu í Engidal, annað þeirra úr mjólk og hitt úr kjöti, voru yfir leyfilegum viðmiðunarmörkum.
Díoxínefni geta myndast í iðnaði en einnig af náttúrulegum ástæðum, svo sem við eldgos og skógarbruna. Brennsluofnar fyrir sorp sem brenna við ónógt hitastig geta stuðlað að umtalsverðri díoxínmengun. Díoxín er helst að finna í jarðvegi, mjólkurafurðum, kjöti, fiski og skelfiski. Lítið er af efninu í plöntum, vatni og andrúmslofti því að efnið binst einkum í fituvef.
Á Íslandi hafa fjórir brennsluofnar mælst með há gildi díoxíns í útblæstri, brennsluofninn Funi í Skutulsfirði og ofnar í Vestmannaeyjum, á Kirkjubæjarklaustri og í Svínafelli í Öræfasveit. Brennsluofnarnir í Skutulsfirði og Öræfum hafa verið lagðir niður.
Þrátt fyrir að um tiltölulega væga hækkun hafi verið að ræða á díoxíni í afurðum frá skepnum frá einum bæ hér á landi ákvað sóttvarnalæknir í samvinnu við vísindamenn frá Háskóla Íslands að gangast fyrir könnun á því áreiti sem fólk kann að hafa orðið fyrir af völdum díoxíns. Áður var lítið vitað um díoxínmagn í mönnum hér á landi og í mars 2011 var safnað blóðsýnum frá íbúum á Ísafirði, Skutulsfirði, Reykjavík, Vestmannaeyjum og Kirkjubæjarklaustri til mælinga á díoxíni. Einnig voru tekin brjóstamjólkursýni frá einum íbúa í Skutulsfirði.
Þá voru tekin hár- og naglasýni til mælinga á blýmagni til að meta hugsanlega mengun frá umhverfi, en blýmagn er talið gefa óbeina vísbendingu um díoxínmengun og mengun almennt.
Rannsakað var díoxínmagn í blóði frá tíu einstaklingum frá Ísafirði og tíu frá Reykjavík. Niðurstöður þessara blóðmælinga voru til viðmiðunar fyrir þá sem sérstaklega voru útsettir fyrir reyk frá brennsluofnunum. Notast var við viðmiðunargildi frá Norðurlöndunum. Um litla hækkun díoxíns reyndist að ræða hjá nokkrum starfsmönnum brennsluofnanna og hjá einum einstaklingi sem búið hafði nálægt brennsluofninum í Skutulsfirði.
Öll gildi reyndust hins vegar vel undir þeim mörkum sem ætla má að geti haft heilsufarsleg áhrif. Sýni úr brjóstamjólkinni var lágt og var einnig vel undir þeim mörkum sem ætla má að geti haft heilsufarsleg áhrif. Blýmælingar í hári og nöglum íbúa á Ísafirði, Reykjavík, Vestmannaeyjum og Kirkjubæjarklaustri sem mæld voru vorið 2011 reyndust allar innan þeirra marka sem eðlileg geta talist.
Smávægileg hækkun var meðal starfsmanna við brennsluofna en ekki meðal þeirra sem bjuggu í námunda við þá. Tveir einstaklingar í viðmiðunarhópnum, annar frá Ísafirði og hinn frá Reykjavík, sem ekki tengdust brennsluofnum voru með hækkað gildi sem kunna að eiga sér aðrar skýringar en mengun frá ofnunum.
Hæstv. forseti. Meginniðurstaða þessara kannana er að starfsmenn við brennsluofna eru með vísbendingu um vægt aukið mengunarálag sem er þó vel innan þeirra marka sem ætla má að geti valdið heilsutjóni. Þeir sem starfa við slíka ofna ættu því að nota öndunargrímur og hlífðarföt við störf sín og auðvitað þarf að gæta ýtrustu varkárni, en eins og ég sagði í upphafi virðist sem hér hafi farið betur en menn höfðu óttast og á horfðist.