140. löggjafarþing — 51. fundur,  31. jan. 2012.

stjórn fiskveiða.

202. mál
[16:50]
Horfa

Flm. (Þór Saari) (Hr):

Virðulegur forseti. Ég mæli fyrir frumvarpi til laga um breytingu á lögum nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum.

Breytingar á kvótakerfinu heitir þetta í stuttu máli og veitir ekki af. Í frumvarpinu segir, með leyfi forseta:

„Markmið laga þessara er að breyta skipulagi fiskveiðistjórnar og sölu sjávarafla og tryggja með því ríka aðkomu sveitarfélaga að úthlutunum aflaheimilda og eflingu byggðar. Með lögunum er stefnt að því að hvert sveitarfélag á Íslandi fái forræði yfir veiðum á samsvarandi hluta nytjastofna á Íslandsmiðum og nemur samanlagðri aflahlutdeild þeirra fiskiskipa sem skráð voru í viðkomandi sveitarfélagi fyrir gildistöku laga um stjórn fiskveiða, nr. 38/1990. Að auki stefna lögin að fjárhagslegri endurskipulagningu útgerðar á Íslandi í kjölfar efnahagshrunsins 2008. Loks stefna lögin að eflingu umhverfisvænna handfæraveiða.“

Í 2. gr. frumvarpsins segir orðrétt:

„Á eftir 3. gr. laganna koma fjórar nýjar greinar, 3. gr. a–3. gr. d, svohljóðandi:

a. (3. gr. a.)

Heimildir til veiða úr nytjastofnum við Ísland eru á forræði íslenskra sveitarfélaga. Þó skulu sveitarfélög hlíta ákvörðun ráðherra skv. 3. gr.

Hlutdeild hvers sveitarfélags í heildarafla skal vera hin sama og samanlögð hlutdeild skráðra fiskiskipa í sveitarfélaginu við gildistöku laga um stjórn fiskveiða, nr. 38/1990.

Ráðherra skal með reglugerð ákvarða hlutdeild einstakra sveitarfélaga í heildarafla.“

Herra forseti. Hér er verið að færa aflaheimildir sem úthlutað er úr sameiginlegum stofnum til þess fyrirkomulags sem var áður en framsal var heimilað á sínum tíma með lögum árið 1990 og í þeim hlutföllum sem voru á viðkomandi svæðum á landinu og byggðust á veiðireynslu á sínum tíma þegar kvótakerfinu var fyrst komið á. Þetta teljum við vera mjög mikilvægt ákvæði þar sem hér er um gríðarlega mikla og góða byggðatengingu að ræða og ætti þetta að vera fyllilega í samræmi við til dæmis áherslur Framsóknarflokksins í þessum málaflokki. Sá flokkur hefur lagt mikla áherslu á að sjávarbyggðir landsins geti haldið áfram að afla fiskjar.

Í b-lið 2. gr. segir, með leyfi forseta:

„b. (3. gr. b.)

Sveitarfélög skv. 3. gr. a skulu selja aflaheimildir til bjóðenda gegn gjaldi á grundvelli uppboða. Uppboð skulu kynnt rækilega með hæfilegum fyrirvara og skal öllum landsmönnum heimil þátttaka. Skulu uppboð haldin með jöfnu millibili tvisvar til tólf sinnum á hverju fiskveiðiári.

Ráðherra skal setja nánari reglur um fyrirkomulag uppboða og forsendur fyrir vali boða skv. 1. mgr. með reglugerð.

Þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. skal sveitarfélögum heimilt að selja allt að helmingi aflaheimilda sem þau hafa yfir að ráða hverju sinni með framvirkum samningum um sölu aflaheimilda til allt að fimm ára í senn til einstaklinga eða lögaðila sem hafa gert samninga um fjárfestingar í nýjum fiskiskipum. Verð aflaheimilda í slíkum samningum skal vera hið sama og meðalverð í uppboðum sveitarfélagsins. Slíkir samningar eru óframseljanlegir án sérstaks samþykkis viðkomandi sveitarfélags.

Kjósi kaupandi aflaheimilda ekki að nýta þær að fullu við lok fiskveiðiárs skal sveitarfélögum skylt að afturkalla sölu þeirra í heild eða að hluta gegn endurgreiðslu alls eða hluta kaupverðs. Fjárhæð endurgreidds uppboðsverðs skal nema uppboðsverði að viðbættri eða frádreginni þeirri hækkun eða lækkun sem orðið hefur á meðalverði aflaheimilda frá kaupdegi til afturköllunardags.

Selji sveitarfélag aflaheimildir til einstaklinga eða lögaðila sem eiga lögheimili utan þess skulu kaupendur greiða sveitarfélaginu 10% álag á uppboðsverð.

Öðrum en sveitarfélögum eða uppboðsmörkuðum á vegum sveitarfélaga er óheimil sala eða framsal aflaheimilda.“

Herra forseti. Hér er verið að færa aflaheimildir og úthlutun þeirra inn í það hagkvæmasta fyrirkomulag sem hugsast getur, þ.e. að setja þær á uppboðsmarkað sem allir landsmenn hafa aðgang að. Uppboð hafa sýnt sig leiða ætíð til hagkvæmustu niðurstöðu fyrir seljandann og fyrir kaupandann sem mun náttúrlega aldrei greiða hærra verð en hann ræður við að greiða. Eigandi auðlindarinnar fær það hæsta verð sem hægt er að selja hana á og allir ættu að öðru jöfnu að ganga sáttir frá borði. Hér eru inni ákvæði sem tengjast byggðasjónarmiðum líka þar sem fram kemur að ef aflaheimild er seld úr viðkomandi sveitarfélagi gerist það með ákveðnum kvöðum, þ.e. það leggst á hana 10% gjald sem rennur til sveitarfélagsins. Þetta er byggðatengt sjónarmið en það kemur samt ekki í veg fyrir að sú hagræðing sem nást þarf fram í greininni náist fram vegna þess að heimildir eru að öðru leyti framseljanlegar.

Í c-lið 2. gr. segir, með leyfi forseta:

„c. (3. gr. c.)

Við veiðar á afla á grundvelli aflaheimilda skv. 3. gr. a er heimill meðafli úr öðrum tegundum allt að 10% af heildarafla hverrar veiðiferðar. Við löndun meðafla skal kaupandi aflaheimilda greiða viðeigandi sveitarfélagi gjald sem nemi meðaluppboðsverði aflaheimilda sömu tegundar á síðasta þekkta uppboðsdegi aflaheimilda, sbr. 3. gr. b.“

Herra forseti. Hugmyndin á bak við þennan lið er fyrst og fremst sú að reyna að koma sem mest í veg fyrir brottkast á fiski sem ekki eru heimildir fyrir til að veiða. Það hafa farið gríðarlegar sögur af því brottkasti sem viðhaft hefur verið í mörg ár á íslenskum fiskiskipum, hvort sem er á frystitogurum, ísfisktogurum eða bátum. Það er gríðarlega mikilvægt fyrir auðlindina í heild sinni að brottkasti verði hætt og að mönnum verði heimilt að koma með þann afla að landi sem þeir veiða og fá þá einfaldlega að landa honum og selja hann á viðeigandi verði en greiði þá fyrir þann afla líka sem heimild.

Í d-lið 2. gr. segir, með leyfi forseta:

„d. (3. gr. d.)

Allur sjávarafli sem veiddur er á grundvelli aflaheimilda sem seldar hafa verið á uppboði sveitarfélags, þó ekki rækja, humar og uppsjávarfiskur, og veiddur er úr stofnum sem að hluta eða öllu leyti halda sig í efnahagslögsögu Íslands, skal seldur á innlendum uppboðsmarkaði sjávarafla er fengið hefur leyfi ráðherra og starfræktur er innan þess sveitarfélags þar sem uppboð aflaheimilda fór fram.

Ákvæði 1. mgr. gildir ekki um einstaklinga og lögaðila sem starfrækja eigin fiskvinnslu og vinna aflann að fullu. Í þeim tilvikum skal uppgjör á aflahlut sjómanna ákvarðast af meðalverði þess uppboðsdags eða síðasta þekkta meðaluppboðsverði uppboðsdags á uppboði skv. 1. mgr.

Heimilt er að selja fullunninn frystan afla utan uppboðs skv. 1. mgr. Til fullunnins frysts afla telst sjávarafli sem hefur verið veiddur og í kjölfarið unninn um borð í frystiskipi, honum pakkað og hann verið flakaður, flattur, sneiddur, roðdreginn, hakkaður eða verkaður á annan hátt og hann frystur að vinnslu lokinni. Þegar aðeins fer fram frysting um borð í frystiskipi á heilum eða hausskornum fiski eða heilfrysting á rækju telst slíkur afli ekki til fullunnins frysts afla í skilningi laga þessara.

Bjóðendur á uppboðsmarkaði skv. 1. mgr. sem vinna keyptan afla utan þess sveitarfélags sem uppboðið fer fram í skulu greiða því sveitarfélagi 10% álag á uppboðsverð.“

Herra forseti. Hér er um þýðingarmikinn lið í 2. gr. að ræða því að þar segir að allur afli sem veiddur er á Íslandsmiðum fari á innlenda uppboðsmarkaði þar sem hverjum sem er er leyft að bjóða í hann. Eins og fram hefur komið og þekkt er skila uppboðsmarkaðir hagstæðustu niðurstöðu sem hægt er að fá. Hér er líka stigið það mikilvæga skref að skilja milli veiða og vinnslu sem lengi hefur verið kallað eftir. Samtök fiskútflytjenda án útgerðar hafa nefnt það að eingöngu með því að vinna allan afla innan lands muni skapast um það bil 800 afleidd störf. Mikilvægt er að leggja áherslu á að erlendir bjóðendur geta líka boðið í þennan fisk þannig að hér er ekki um að ræða að hagkvæmnissjónarmið séu fyrir borð borin. Það mun nást hæsta verð fyrir aflann sem hægt er hverju sinni og ef það eru kaupendur erlendis sem hafa áhuga á að kaupa íslenskan fisk verður þeim það heimilt.

Í 3. gr. frumvarpsins segir svo, með leyfi forseta:

„4. gr. laganna orðast svo:

Enginn má stunda veiðar í atvinnuskyni við Ísland nema hafa fengið til þess almennt veiðileyfi. Veiðileyfi í atvinnuskyni fellur niður hafi fiskiskipi ekki verið haldið til fiskveiða í atvinnuskyni í tólf mánuði. Þá fellur veiðileyfi niður ef fiskiskip er tekið af skrá hjá Siglingastofnun Íslands og ef eigendur eða útgerð þess fullnægja ekki skilyrðum síðari málsliðar 5. gr.“

Hér er einfaldlega verið að taka á ákveðnum öryggis- og aðgengismálum í fiskveiðum. Þessi grein er í samræmi við það sem er í gildandi lögum um stjórn fiskveiða.

4. gr. frumvarpsins orðast svo, með leyfi forseta:

„Eftirfarandi breytingar verða á 6. gr. a laganna:

a. Í stað 1. mgr. koma tvær nýjar málsgreinar, svohljóðandi:

Á hverju fiskveiðiári hefur ráðherra til ráðstöfunar 40.000 lestir af óslægðum botnfiski sem nýttar skulu til veiða með handfærum á tímabilinu frá 1. apríl til 30. september samkvæmt sérstökum leyfum Fiskistofu. Í lögum þessum eru slíkar veiðar nefndar strandveiðar og leyfin til þeirra veiða strandveiðileyfi.

Afli sem veiðist með strandveiðum reiknast ekki til heildarafla skv. 3. gr.

b. Í stað 3. mgr. koma tvær nýjar málsgreinar, svohljóðandi:

Strandveiðar eru háðar sérstöku leyfi Fiskistofu. Fiskistofu er aðeins heimilt að veita fiskiskipi leyfi til strandveiða að fullnægt sé ákvæðum 5. gr. og einungis er heimilt að veita hverri útgerð, einstaklingi eða lögaðila leyfi til strandveiða fyrir eitt fiskiskip. Á gildistíma strandveiðileyfis er fiskiskipi óheimilt að stunda aðrar veiðar í atvinnuskyni en strandveiðar.

Handhafar strandveiðileyfis skulu greiða því sveitarfélagi þar sem þeir landa afla gjald, auðlindagjald, við löndun afla. Gjaldið skal lagt á miðað við hvert kíló landaðs sjávarafla. Fjárhæð gjaldsins skal miðast við meðalkílóverð síðasta þekkta uppboðsdags aflaheimilda í sveitarfélaginu.

c. 4. mgr. orðast svo: Strandveiðileyfi skulu veitt skráðum fiskiskipum með heimilisfang á svæði skv. 3. mgr. Einungis er heimilt að veita fiskiskipum útgerða, einstaklinga eða lögaðila strandveiðileyfi sé lögheimili þeirra skráð á sama stað og heimilisfang skráðs fiskiskips. Sama fiskiskipi verður aðeins veitt leyfi frá einu landsvæði á hverju veiðitímabili.

d. Orðið „föstudaga“ í 1. tölul. 5. mgr. fellur brott.

e. Í stað tölunnar „14“ í 2. tölul. 5. mgr. kemur: 18.

f. 5. tölul. 5. mgr. fellur brott.“

Herra forseti. Hér er um að ræða stórfellda útvíkkun á strandveiðunum. Heildarhlutdeildin fyrir 40.000 lestir og tímabilið lengist um einn mánuð í hvorn enda frá því sem nú er, þ.e. hefst 1. apríl og lýkur 30. september. Þetta mun auka mjög aðgengi allra að fiskveiðum og gera mönnum kleift hvort sem þeir stunda veiðar eingöngu í atvinnuskyni eða í hjáverkum að sækja sjó frá Íslandi. Lenging veiðitímabilsins og stærð kvótans sem varið er til strandveiðanna mun gera það að verkum að þessar ólympísku veiðiaðferðir leggjast af. Það verður enginn svo mikið í spreng að bruna út á sjó fyrstu tvo, þrjá daga hvers mánaðar eða hvers tímabils til að ná sem mestu af fiski vegna þess að það er af nógu að taka. Tímabilið er þar að auki lengt þannig að þetta mun gera mönnum kleift að sækja sinn sjó ásamt því að taka sér þau eðlilegu frí sem þarf á þeim tíma.

Í 5. gr. frumvarpsins segir svo, með leyfi forseta:

„7. gr. laganna orðast svo:

Við gildistöku laga þessara skal sérstakur sjóður, kvótaskuldasjóður, taka við réttindum og skyldum skuldara allra krafna á hendur íslenskum útgerðum, einstaklingum og lögaðilum sem sannanlega eru til komnar vegna kaupa eða leigu á aflaheimildum. Frá þeim tíma er sjóðurinn eini skuldari slíkra krafna.

Kröfur á hendur kvótaskuldasjóði skv. 1. mgr. bera ekki vexti.

Seljendur aflaheimilda skulu að loknu uppboði og uppgjöri greiða kvótaskuldasjóði gjald að fjárhæð sem nemur 5% söluverðmætis seldra aflaheimilda hvers uppboðs.

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra fer með yfirstjórn kvótaskuldasjóðs og skal hlutast til um að rekstur hans fari fram á eðlilegan og lögmætan hátt. Ráðherra er heimilt að ráða sjóðnum starfsfólk.“

Herra forseti. Hér er um að ræða mikilvæga endurskipulagningu á skuldum sjávarútvegsfyrirtækja á Íslandi. Við leggjum þetta til sem sanngjarnt mál og réttlætismál til að koma til móts við þær útgerðir sem í góðri trú keyptu sér eitthvað sem þær héldu að þær mundu eiga til frambúðar. Menn geta sagt sem svo að útgerðarmenn hafi átt að vita að þeir væru að kaupa köttinn í sekknum þegar þeir keyptu sér kvóta en engu að síður gerðu menn það í góðri trú og samkvæmt gildandi lögum. Skuldir sem til er stofnað vegna þessara kaupa verða því afskrifaðar og settar í sérstakan kvótaskuldasjóð. Eigendur þessara skulda, þ.e. þá væntanlega lánastofnanir, munu fá þessa skuld endurgreidda, að vísu án vaxta, en hluti af því er einfaldlega sú staða að ljóst var árum og áratugum saman að bönkum og fjármálafyrirtækjum var óheimilt að lána til kvótakaupa en þau gerðu það engu að síður. Þess vegna teljum við ekki rétt að þau verði áfram verðlaunuð með því að geta tekið vexti af lánunum. Höfuðstóllinn verður endurgreiddur að fullu. Það kemur þarna inn ákvæði um 5% álag á söluverðmæti til að greiða upp þessar skuldir. Áður hefur komið fram spurning um hvað þetta geti tekið langan tíma. Þetta er einfaldlega eitt af þessum atriðum, útfærsluatriði, og ef menn sjá fram á að þessi kvótaskuldasjóður verði ekki gerður upp fyrr en að 100 árum liðunum er einboðið að þetta hlutfall verður að hækka. Það er ekki líklegt að það þurfi að lækka.

Í 6. gr. frumvarpsins segir:

„8.–15. gr., V. og VI. kafli og ákvæði til bráðabirgða I–VII í lögunum falla brott.“

Í 7. gr. segir að lög þessi öðlist gildi 1. september 2012.

Þetta er dagsetning sem þarf hugsanlega að taka til endurskoðunar miðað við það samkomulag sem gæti náðst fram um framgang þessa frumvarps í þinginu en eins og fram hefur komið hefur hæstv. forsætisráðherra lagt til að allar breytingar á fiskveiðistjórnarkerfinu fari í þjóðaratkvæðagreiðslu. Við munum því leggja til að þetta frumvarp okkar ásamt frumvarpi hv. þm. Péturs Blöndals, sem verður mælt fyrir á eftir, sem og frumvarp sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, sem kemur væntanlega inn í þingið í febrúar, fari öll saman í þjóðaratkvæðagreiðslu. Þannig og eingöngu þannig er hægt að fá fram skýran vilja þjóðarinnar um hvað hún vill gera hvað varðar fiskveiðistjórn.

Virðulegi forseti. Í greinargerð með frumvarpinu segir, með leyfi forseta:

„Frumvarp þetta var áður lagt fram á 139. löggjafarþingi (þskj. 1510, 839. mál) en er nú lagt fram að nýju.

Markmið þessa frumvarps er að færa úthlutun á aflaheimildum úr sameiginlegum fiskveiðiauðlindum þjóðarinnar til þess horfs sem hún var í áður en framsal aflaheimilda kom til árið 1991, en fram að þeim tíma hafði úthlutunin byggst á veiðireynslu til margra ára og var því bæði sanngjörn og réttlát. Með frumvarpinu er einnig reynt að tryggja að aflaheimildir fari til þeirra byggða sem þeim var upprunalega úthlutað til. Miðað er við að aflahlutdeildin sé nýtt í viðkomandi sveitarfélagi. Þó er sveigjanleiki í nafni hagkvæmni tryggður þar sem aflahlutdeildin er framseljanleg þegar hagkvæmnisrök gefa tilefni til. Með því móti verður réttur íbúa sjávarbyggða á Íslandi til sjósóknar tryggður eins og verið hefur frá örófi alda sem eini raunverulegi grundvöllur tilvistar flestra þeirra.

Niðurstöður framangreindrar tilfærslu á aflaheimildum til sveitarfélaga heimfært á fiskveiðiárið 2010/2011“ — nýrri tölur voru ekki til þegar þetta frumvarp var samið — „miðað við upphaflega úthlutaðan kvóta byggt á veiðireynslu, er sýnt sem dæmi“ í töflu á bls. 4.

Þar kemur fram hver úthlutaður kvóti á sveitarfélög fiskveiðiársins 2010/2011 yrði miðað við upprunalega úthlutun samkvæmt veiðireynslu á hverjum stað árið 1991. Það eru mjög athyglisverðar tölur, herra forseti, því að í fylgiskjali með frumvarpinu kemur fram hvað þetta er nákvæmlega í þorskígildistonnum og þegar menn reikna út einhvers konar verðmiða og reyna að setja á þessi þorskígildistonn kemur fram að fjárhagsstaða sveitarfélaganna fer úr öllum tilfellum úr rauðu í grænt og þetta þýða gríðarlegar tekjur fyrir sjávarbyggðir um allt land.

Í greinargerðinni segir að auki, með leyfi forseta:

„Skýrt er kveðið á um eignarhald þjóðarinnar á fiskstofnunum í kringum landið í fyrstu tveimur greinum laga um stjórn fiskveiða. Þar segir orðrétt:

1. gr. Nytjastofnar á Íslandsmiðum eru sameign íslensku þjóðarinnar. Markmið laga þessara er að stuðla að verndun og hagkvæmri nýtingu þeirra og tryggja með því trausta atvinnu og byggð í landinu. Úthlutun veiðiheimilda samkvæmt lögum þessum myndar ekki eignarrétt eða óafturkallanlegt forræði einstakra aðila yfir veiðiheimildum.

2. gr. Til nytjastofna samkvæmt lögum þessum teljast sjávardýr, svo og sjávargróður, sem nytjuð eru og kunna að verða nytjuð í íslenskri fiskveiðilandhelgi og sérlög gilda ekki um.

Til fiskveiðilandhelgi Íslands telst hafsvæðið frá fjöruborði að ytri mörkum efnahagslögsögu Íslands eins og hún er skilgreind í lögum nr. 41 1. júní 1979, um landhelgi, efnahagslögsögu og landgrunn.

Frumvarp þetta tryggir að arður af nytjastofnum á Íslandsmiðum skili sér til réttmæts eiganda þeirra, íslensku þjóðarinnar. Upptaka uppboðskerfis við sölu aflaheimilda tryggir hámarksverð fyrir nýtingarrétt auðlindarinnar en þó eingöngu að því marki sem útgerðirnar geta borið. Frumvarpið gerir einnig ráð fyrir að hluta aflaheimilda megi selja framvirkt til allt að fimm ára í senn þannig að þeir sem hyggjast fjárfesta í útgerð geti gert ráð fyrir aðgengi að heimildum til lengri tíma en eins árs. Þá er sveigjanleiki tryggður með því að útgerðir utan viðkomandi sveitarfélaga geta keypt aflaheimildir gegn greiðslu 10% álags eða gjalds.

Með ákvæði um meðafla er stefnt að því að girða að mestu leyti fyrir brottkast afla. Þó væri æskilegast að settar yrðu skýrar og afdráttarlausar reglur sem alfarið banni brottkast afla gegn þungum viðurlögum.

Frumvarpið gerir ráð fyrir mikilli beinni atvinnusköpun vegna löndunar alls afla og sölu í gegnum innlenda uppboðsmarkaði í samræmi við ákvæði frumvarps til laga um sölu sjávarafla o.fl. frá 139. löggjafarþingi (þskj. 51, 50. mál) en þar segir m.a.:

„Allur sjávarafli, þó ekki rækja, humar og uppsjávarfiskur, sem veiddur er úr stofnum sem að hluta eða öllu leyti halda sig í efnahagslögsögu Íslands, skal seldur á innlendum uppboðsmarkaði sjávarafla er fengið hefur leyfi Fiskistofu. Heimilt er að selja afla í beinum viðskiptum í innlenda fiskvinnslu og skal þá verð milli útgerðar og fiskvinnslu ákvarðast af markaðsverði söludagsins eða síðasta þekkta markaðsverði á uppboðsmarkaði.

Heimilt er að selja fullunninn frystan afla utan innlends fiskmarkaðar skv. 12. gr. a. Til fullunnins frysts afla telst sjávarafli sem hefur verið veiddur og í kjölfarið unninn um borð í frystiskipi, honum pakkað og hann verið flakaður, flattur, sneiddur, roðdreginn, hakkaður eða verkaður á annan hátt og hann frystur að vinnslu lokinni. Þegar aðeins fer fram frysting um borð í frystiskipi á heilum eða hausskornum fiski eða heilfrysting á rækju telst slíkur afli ekki til fullunnins frysts afla í skilningi laga þessara.“

Þessi breyting ein sér mun að öllum líkindum leiða til um 800–1.000 nýrra starfa við fiskverkun með mjög litlum tilkostnaði á skömmum tíma.

Framsal aflaheimilda hefur leitt til gríðarlegrar byggðaröskunar víða um land og gert að engu eina bjargræði sjávarbyggða, sjósóknina, sem þær hafa notið í aldaraðir. Með því að taka lífsbjörgina af sjávarbyggðunum hefur öll afkoma og eignastaða íbúa á þessum stöðum raskast við atvinnuleysi, brottflutning og eignabruna. Með samþykkt þessa frumvarps mun sú þróun snúast við og fólksflótti af landsbyggðinni til höfuðborgarsvæðisins stöðvast og komið í veg fyrir þann gríðarlega samfélagslega tilkostnað sem slíkir hreppaflutningar hafa í för með sér.

Aukning á afla til strandveiða, sem hér eftir verða utan tillagna Hafrannsóknastofnunarinnar um heildarafla og standa yfir stærri hluta ársins en nú er, mun hafa umtalsverð áhrif á atvinnulíf um allt land. Auðlindagjald og strandveiðar munu og skila umtalsverðum tekjum til þeirra sveitarfélaga þar sem aflanum er landað.

Sá skaði sem útgerðir og núverandi handhafar aflaheimilda verða fyrir vegna missis aflaheimilda verður bættur með því að skuldir útgerða sem eru til komnar vegna kaupa á aflaheimildum verða færðar í sérstakan kvótaskuldasjóð. Skýrt er í lögum að aflahlutdeild útgerðar er ekki eign hennar og þær skuldir sem stofnað hefur verið til vegna kaupa á slíkum heimildum eru og hafa alltaf verið áhættulánveiting viðkomandi lánveitenda. Kvótaskuldasjóður verður greiddur niður með 5% gjaldi á allar seldar veiðiheimildir þar til sjóðurinn er að fullu upp gerður. Skuldir kvótaskuldasjóðs bera enga vexti.

Varðandi þá umræðu sem skapast hefur og lýtur að hugsanlegum brotum á eignarréttarákvæði stjórnarskrár skal tekið fram að um langa tíð hefur skýrt verið kveðið á um það í lögum að nytjastofnar á Íslandsmiðum séu sameign þjóðarinnar. Þrátt fyrir að möguleiki sé á þeirri ólíklegu niðurstöðu dómstóla að ríkið væri skaðabótaskylt vegna innköllunar aflaheimilda eða annars þess sem leiðir af frumvarpi þessu, þá er engu að síður þess virði að þær breytingar sem hér eru lagðar til komist til framkvæmda. Betra er að þurfa hugsanlega að sæta slíkri niðurstöðu dómstóla en að búa áfram við óbreytt eða lítið breytt fyrirkomulag fiskveiða.

Í framhaldi af þeim breytingum á fiskveiðistjórnarkerfinu sem frumvarp þetta gerir ráð fyrir er brýnt að fram fari víðtæk og ítarleg úttekt á Hafrannsóknastofnuninni og veiðiráðgjöf hennar með tilliti til aðferðafræðilegra sjónarmiða. Þar verði einnig kannað hversu vel hefur tekist til með verndun fiskstofna, fiskimiða og lífríkis og uppbyggingu fiskstofna. Í þeirri úttekt er brýnt að fiskveiðar við Ísland verði skoðaðar heildstætt með tilliti til þess skaða sem þær hafa valdið á lífríkinu og lagt mat á hagkvæmni togveiða annars vegar og krókaveiða hins vegar. Slíka úttekt ættu hlutlausir erlendir aðilar gera í samráði við sjómenn, íslenska fiskifræðinga og vistfræðinga.“

Þar með lýkur greinargerð frumvarpsins, herra forseti.

Í lokin langar mig að tæpa örlítið á einu atriði að eftir samtöl við Fiskistofu tókst að koma verðmiða á þau þorskígildistonn sem úthlutað var á árinu 2010/2011 og hvers aðferðafræði yrði notuð við úthlutun á fiskveiðiheimildum í framtíðinni til sveitarfélaganna. Þar langar mig að tæpa á því að meðalleiguverð á þorskkílói á markaði í dag er 318 kr. Ef við heimfærum þá tölu upp á þær aflaheimildir sem kæmu í hlut til dæmis Akureyrar, en það eru 22.986 tonn, er um að ræða 7,3 milljarða fyrir Akureyrarbæ. Þótt við gæfum okkur það að verð á aflaheimildum mundi lækka umtalsvert við aukið framboð af þeim og jafnvel lækka um helming er engu að síður um að ræða fjárhæð til Akureyrarbæjar upp á ríflega 3,5 milljarða kr. á hverju ári. Samsvarandi upphæð fyrir Ísafjarðarbæ væri um 6,5 milljarðar á ári eða 3,25 ef aflaheimildir lækkuðu um 50%. Fyrir Norðurþing, sem nú samanstendur af Húsavík, Kópaskeri og Raufarhöfn, væri samsvarandi upphæð fyrir seldar aflaheimildir 2,9 milljarðar á ári eða 1,5 milljarðar miðað við 50% lækkun á verði. Fyrir Reykjanesbæ væri samsvarandi upphæð 3,6 milljarðar á ári eða tæplega 2 milljarðar miðað við lækkun á verði aflaheimilda. Fyrir Vestmannaeyjar, sem er einhver stærsta verstöð landsins, er um að ræða upphæð miðað við meðalleiguverð á kvóta í dag upp á 9,2 milljarða á ári en miðað við 50% lækkun á verði aflaheimilda vegna aukins framboðs yrði sú upphæð 4,6 milljarðar á ári.

Þetta er tækifærið til að gera sveitarfélögin og byggðirnar í kringum landið að þeim öflugu stofnunum og samfélögum sem við þurfum sannarlega á að halda hér á landi. Áratugaumræða um vanda landsbyggðarinnar og hvað landsbyggðin á bágt og erfitt — það er kominn tími til að henni ljúki með afgerandi aðgerðum sem eru raunverulegar og sem eru í þágu landsbyggðarinnar en að þeim sé ekki öllum miðstýrt héðan af höfuðborgarsvæðinu.

Ég hef fengið það orð á mig að vera óvinur landsbyggðarinnar vegna þess að ég hef til dæmis ekki stutt þá ævintýramennsku sem er í gangi vegna framkvæmdarinnar við Vaðlaheiðargöng. Það er ekki rétt. Ég áskil mér einfaldlega þann rétt að hafa skoðun á því þegar verið er að fara fram hjá lögum og reglum og fara í framkvæmdir á einhverjum öðrum forsendum en lagt er upp með til dæmis í samgönguáætlun. Þetta frumvarp mundi gera Akureyrarbæ og sveitarfélögunum á Norðausturlandi kleift að fara í vegaframkvæmdir upp á milljarða á hverju einasta ári ef menn vildu bæta samgöngur í sínum sveitarfélögum og landshlutum.

Frumvarpið með tilheyrandi arðgreiðslum til sveitarfélaganna úti á landi mundi gera þeim kleift að stórbæta alla þjónustu við íbúa, stórbæta skólana, stórbæta flesta hluti samfélagsins sem þörf er á og búa til öflugt, gott og fallegt mannlíf út um allt land, það er sú framtíðarsýn sem við eigum að hafa fyrir landið Ísland. Við eigum ekki að útdeila með handstýringu aflaheimildum til sérvalinna hagsmunaaðila í útgerð, við eigum ekki að útdeila þeim og ráða öllu með tekjur af þeim héðan úr Reykjavík. Þessu er best fyrir komið þar sem því hefur alltaf verið fyrir komið þar til fyrir um 30 árum, á sínum heimaslóðum í sjávarbyggðunum í kringum landið.