140. löggjafarþing — 52. fundur,  1. feb. 2012.

störf þingsins.

[15:33]
Horfa

Ólína Þorvarðardóttir (Sf):

Frú forseti. Í dag eru þrjú ár frá því að ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur tók við stjórnartaumum í skugga efnahagshruns og búsáhaldabyltingar. (VigH: Búin að sitja fimm ár í ríkisstjórn.) Það verður ekki sagt að sú ríkisstjórn hafi tekið við björgulegu búi eftir 18 ára samfellda stjórnarsetu Sjálfstæðisflokksins sem leiddi til taumlausrar og eftirlitslausrar markaðshyggju og einkavæðingar með þenslu, misskiptingu og ójöfnuði í samfélaginu sem leiddi síðan til þessa hruns sem við erum enn að bíta úr nálinni með.

Verkefnin sem biðu ríkisstjórnar Jóhönnu Sigurðardóttur voru mörg og stór. Við blasti 216 milljarða halli á ríkissjóði sem lítur út fyrir að verða ekki nema 20 milljarðar í ár sem dæmi um viðsnúninginn. Við blasti hrunið bankakerfi, atvinnuleysi, 18% verðbólga, skuldug heimili og þjóð í sárum. Hvarvetna blasti við sviðin jörð, ekki síst í sálarlífi þjóðarinnar.

Frá því að þetta var hefur mikið vatn til sjávar runnið. Stjórnin hefur lyft grettistaki og viðsnúningurinn er öllum ljós. Efnahagsáætlun stjórnvalda sem unnin var í samstarfi við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn náði fram að ganga og samstarfinu við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn lauk. Land er tekið að rísa á ný, landsframleiðslan eykst, hagvöxtur er farinn af stað, kaupmáttur eykst og mestu varðar að líðan fólks er að batna samkvæmt ábyggilegum og viðurkenndum könnunum. (VigH: Samkvæmt skoðanakönnunum.) Jöfnuðurinn er að aukast í samfélaginu, ekki síst vegna skattkerfisbreytinga með þrepaskiptu skattkerfi, launajöfnuður er að aukast í samfélaginu. En þó að margt hafi áunnist og bjartara sé fram undan bíða viðamikil verkefni, að koma Evrópusambandsaðildinni (Forseti hringir.) í þjóðaratkvæðagreiðslu, nýtt fiskveiðistjórnarkerfi, ný stjórnarskrá. Það skiptir nefnilega máli hverjir stjórna og það skiptir máli að gengið sé til verka af fumleysi og ábyrgð og það hafa stjórnvöld sannarlega gert.. Ég hef fulla trú (Forseti hringir.) á því að það muni þau gera það sem eftir lifir kjörtímabils. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)