140. löggjafarþing — 52. fundur,  1. feb. 2012.

störf þingsins.

[15:36]
Horfa

Einar K. Guðfinnsson (S):

Virðulegi forseti. Ég geri ráð fyrir því að þegar hv. þm. Sigmundur Ernir Rúnarsson var að flytja sinn mikla lofsöng um meintan aga í ríkisfjármálum hafi hann sérstaklega verið að vísa til mikils árangurs ríkisstjórnarinnar í niðurskurði á heilbrigðismálum á landsbyggðinni. Þar var auðvitað áhersluatriði að finna þegar ríkisstjórnin ákvað að taka á í ríkisfjármálum, þar virtist hafa verið mesta lausungin og að þar þyrfti sérstaklega að taka á málum. Hins vegar hefur verið skemmtilegt að hlusta á þær pólitísku öfugmælavísur sem hafa verið fluttar í órímuðu formi í tilefni af því að ríkisstjórnin á þriggja ára afmæli. Að vísu sakna ég þess dálítið úr þessum kór að hingað hefur enginn komið úr hópi VG til að lofsyngja ríkisstjórnina. [Hlátur í þingsal.] Það virðist vera orðið hlutverk Samfylkingarinnar einnar að gera það, enda geri ég ekki ráð fyrir því að í hópi VG séu mjög margir ánægðir um þessar mundir. (Gripið fram í.)

Í morgun var birt einhvers konar snemmbær minningargrein um ríkisstjórnina þar sem höfundarnir eru formaður VG og formaður Samfylkingarinnar. Þar var ýmislegt undarlegt að sjá eins og gengur. Í svona minningargreinum er stundum viðfangsefnið hlaðið nokkuð miklu lofi, en þar var líka margt skemmtilegt að sjá, svo sem eins og þessi setning, með leyfi virðulegs forseta:

„Samkvæmt ákvörðun meiri hluta Alþingis er nú verið að kanna til fullnustu kosti og galla Evrópusambandsaðildar.“

Hvað er verið að segja? Hér er ekki verið að segja það sem raunverulega gerðist 16. júlí árið 2009 þegar Alþingi ákvað að sækja um aðild að Evrópusambandinu. Nú er bara verið að segja okkur að tekin hafi verið ákvörðun um að kíkja í pakkann, fremja það sem hæstv. fyrrverandi sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra kallaði bjölluatið, athuga hvað þarna væri að finna. Það er dálítið sérkennilegt að forustumenn ríkisstjórnarinnar virðast ekki lengur trúa á að verið sé að sækja um raunverulega aðild að Evrópusambandinu. Þetta eru einhverjar könnunarviðræður, athuga málið o.s.frv. (Forseti hringir.) Hvað er verið að segja? Er verið að segja að það sé engin alvara á bak við þetta? Hingað hafa þingmenn Samfylkingarinnar komið og sagt okkur að allt muni breytast þegar aðildarviðræðunum ljúki en þeim á greinilega ekkert að ljúka með neinni niðurstöðu. (Forseti hringir.) Það er bara verið að skoða í pakkann, kanna. Þetta er eins konar pólitískur könnunarleiðangur til Brussel. (Gripið fram í.)