140. löggjafarþing — 52. fundur,  1. feb. 2012.

störf þingsins.

[15:38]
Horfa

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (S):

Frú forseti. Já, það eru þrjú ár síðan ríkisstjórn vinstri flokkanna komst til valda og um 200 skattkerfisbreytingar hafa síðan verið gerðar, álögur á heimilin, fyrirtækin og fólkið í landinu.

Ég tek undir það sem hefur verið sagt um bensíngjaldið. Það skiptir máli að þessi ríkisstjórn komi til móts við heimilin í landinu, fjölskyldurnar í landinu og breyti, a.m.k. tímabundið, álögum á bensíngjald. Þótt menn vilji ekki alltaf kannast við allt í sögunni sýnir hún að þegar ríkisstjórnir börðust við 130–140 kr. bensínlítrann, en ekki 250 kr. eins og er í dag, fóru menn gagngert í það að breyta álögum á bensíngjald tímabundið til að koma til móts við fjölskyldurnar í landinu. Það skiptir máli og ég vona að vinstri stjórnin sjái ljósið í þessum efnum.

Auðvitað skiptir þetta líka máli varðandi tolla og vörugjöld. Ég rek augun í það í miðlum dagsins að þeir samfylkingarþingmenn sem vilja fara í það að breyta tollum og vörugjöldum segja allt í einu fjálglega: Þetta er svo flókið. Það er hins vegar aldrei flókið að leggja á skatta og hækka gjöld, en þeir vilja ekki breyta allt í einu núna tolla- og vörugjaldafarganinu sem er nauðsynlegt fyrir neytendur í landinu því að það er óneitanlega flókið.

Auðvitað vitum við, frú forseti, að það er vinstri mönnum eðlislægt að fara í allar torfærur þegar kemur að því að afnema tolla, lækka þá, einfalda kerfi o.s.frv. Ég held að það sé nauðsynlegt að þingið taki núna til skoðunar meðal annars þingmál sem hér liggur fyrir um að sjónum verði beint að tollum og vörugjöldum í landinu til að gera kerfið einfaldara, skýrara, gegnsærra og að því verði breytt til að koma til móts við neytendur í landinu.