140. löggjafarþing — 52. fundur,  1. feb. 2012.

lagning raflína í jörð.

402. mál
[15:45]
Horfa

Þór Saari (Hr) (um atkvæðagreiðslu):

Frú forseti. Ég fagna því innilega að við göngum nú til atkvæðagreiðslu um þetta mikilvæga mál. Það er mjög mikilvægt fyrir Íslendinga að náttúruauðlindirnar og þar á meðal orkuauðlindirnar séu nýttar með skynsamlegum hætti. Ein af neikvæðu afleiðingunum af því að nýta þær er sú að setja þarf upp raflínur þvers og kruss um landið sem veldur mikilli sjónmengun. Það er orðið tímabært að Íslendingar hugleiði það alvarlega með hvaða hætti hægt er að koma raflínum í jörð, hvort hægt sé að gera það með skynsamlegum og hagkvæmum hætti. Frumvarpið gerir ráð fyrir að það sé skoðað kirfilega.

Ég hvet formann umhverfis- og samgöngunefndar og nefndina í heild til að taka það til alvarlegrar athugunar í framhaldinu að lagt verði bann við lagningu nýrra loftlína í nýjum línustæðum þar til úttektinni er lokið.