samgönguáætlun 2011--2022.
Hæstv. forseti. Ég nefni þessa tölu með fyrirvara, 600 millj. kr. til snjómoksturs umfram það sem gerist í venjulegu árferði ef við lítum til undangenginna ára. Þetta er að sjálfsögðu byggt á áætlunum enda ekki liðið langt á árið. Ég óskaði eftir upplýsingum frá Vegagerðinni um þetta efni og mun gera grein fyrir því í ríkisstjórn fljótlega vegna þess að þetta snertir að sjálfsögðu fjárhag Vegagerðarinnar og er alveg hárrétt hjá hv. þingmanni að getur bitnað á framkvæmdum ef ekkert annað breytist. Hv. þingmaður vill ekki að svo gerist en það mun gerast ef ekki koma til viðbótarpeningar. Þetta er upphæð sem er notuð, sem Vegagerðin hefur til ráðstöfunar til framkvæmda, til viðhalds og til snjómoksturs sem verður ekki vikist undan að viðhafa. Reyndar vildu margir hafa hann miklu meiri en við þegar getum sinnt. Um þetta mun ég fá nánari upplýsingar á komandi dögum. Ég legg áherslu á að þetta er að sjálfsögðu byggt á áætlunum, þetta er byggt á spádómum miðað við það veðurfar sem við höfum kynnst núna síðustu vikur og mánuði.
Varðandi tengivegina er rétt að uppi voru hugmyndir sem komu frá Vegagerðinni sjálfri um miklu meira fjármagn en ætlað er í samgönguáætlun til tengivega. Við erum með 500 millj. á ári í tengivegi en tillaga Vegagerðarinnar var milljarður. Ég er sammála hv. þingmanni um að ef við fáum meira fjármagn til ráðstöfunar þá er ég því mjög fylgjandi að láta (Forseti hringir.) það renna hlutfallslega stríðar til tengivega en annarra framkvæmda.