140. löggjafarþing — 52. fundur,  1. feb. 2012.

tólf ára fjarskiptaáætlun fyrir árin 2011--2022.

342. mál
[18:41]
Horfa

innanríkisráðherra (Ögmundur Jónasson) (Vg) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég hef kynnt mér póstmálin mjög vel, allar götur frá því að við undirgengumst EES-skilmálana. Það var reyndar sá þáttur sem ég gagnrýndi mjög harkalega og taldi að mundi bitna á okkur þegar fram liðu stundir. Ég minnist þess að tilkostnaðurinn við að senda út BSRB-tíðindi fór úr 300 þús. kr. í 1.300 þúsund ef markaðsforsendur voru látnar ráða. Ég hef því alla tíð haft miklar efasemdir um að feta út á þessa braut og meðal annars af þeirri ástæðu fór innanríkisráðuneytið fram á að innleiðingu þessarar tilskipunar yrði frestað og sú frestun gildir út þetta ár. Við erum með öðrum orðum með þessi mál til skoðunar. Ég deili efasemdum hv. þingmanns og áhyggjum yfir þessari breytingu á póstmarkaðnum.

Hins vegar þurfum við að horfa til þess að póstur er tæki til að koma upplýsingum eða bréfi eða pakka á milli staða. Nú er tæknin sífellt að breytast og við þurfum að vera opin gagnvart því að við getum komið upplýsingum frá okkur í gegnum fjarskiptin sem við gátum ekki gert fyrir örfáum árum síðan. Við þurfum því að skoða þetta allt saman heildstætt, þróun fjarskipta og breytingar á póstmarkaði.