tólf ára fjarskiptaáætlun fyrir árin 2011--2022.
Virðulegi forseti. Ég ætla að taka síðari spurninguna fyrst og þar skal ég játa mig nokkurn veginn sigraðan. Ég er ekki mikill sérfræðingur á þessu sviði frekar en öðrum tæknilegum sviðum.
Það hefur einfaldlega verið þannig, eins og ég hef skilið þetta, að markaðurinn hefur kallað eftir því að til staðar væru ljósleiðarar vegna þess að það væri sá flutningsmáti sem fyrirtækin vildu frekar reiða sig á. Hins vegar hafa menn verið að nota þráðlaus sambönd á ýmsum stöðum á landinu, sums staðar held ég með nokkuð góðum árangri og ég hygg að það hafi verið að batna. En eftir sem áður verður maður mjög var við að notendur sem hafa búið við það kalla mjög eftir því engu að síður að fá ljósleiðaratengingu, sem að minnsta kosti í mínum huga er vísbending um að notendurnir, markaðurinn, fólkið og fyrirtækin telji að hagsmunum sínum sé betur borgið með ljósleiðara en án.
Varðandi afskekktustu staðina er það alveg rétt, og það kemur fram í þessu plaggi, að það kostar gríðarlega mikið að ljósleiðaravæða hvert einasta heimili á landinu. Kostnaðurinn er mestur í dreifbýlustu héruðunum og við gerum okkur grein fyrir því. Þess vegna hafa menn reynt að leita annarra lausna eins og við þekkjum. Fjarskiptasjóður hefur komið þar að og það hefur einmitt verið eitt hlutverk fjarskiptasjóðs að byggja þetta upp. Þar hafa hins vegar komið upp vandamál, til dæmis það að á fyrri stigum hösluðu einstök fyrirtæki sér völl og bjuggu til lausnir sem menn telja núna síðar meir að séu ekki fullnægjandi. Þar hefur fjarskiptasjóður hins vegar ekki heimild til að koma inn með stuðning vegna þess að það er þá talið vera brot á samkeppninni og þess vegna hefur það búið til ákveðin vandamál.
Lausnin sem búin var til upphaflega og menn voru ánægðir með á sínum tíma hefur ekki reynst sú framtíðarlausn, en fjarskiptasjóður vegna annarra reglna, m.a. um samkeppni, hefur ekki getað séð sér fært að koma þarna inn með öflugum hætti.