tólf ára fjarskiptaáætlun fyrir árin 2011--2022.
Hæstv. forseti. Við ræðum um fjögurra ára fjarskiptaáætlun og tólf ára fjarskiptaáætlun, tvær þingsályktunartillögur, sambærilegt við það sem við ræddum hér um samgönguáætlun.
Mig langar að byrja á sama stað og ég byrjaði í umræðunni um samgönguáætlun, að beina því til hæstv. ráðherra og ráðuneytis og þeirrar nefndar sem fjallar um málið hvort menn hafi gert sér grein fyrir að þessar áætlanir ganga sem grunnur inn í landsskipulag sveitarfélaga og verða væntanlega grunnur að þeim og hafa einhver áhrif þar að lútandi, sem þær hafa vissulega og verulega í samgöngumálunum. Sveitarfélög og svæði landsins þurfa þá að aðlaga aðal- og svæðisskipulög sín að þessari áætlun eða þá að koma með skýr rök fyrir því af hverju þau gera það ekki. Þá er spurningin hvort ráðuneytið og fjarskiptayfirvöld taki tillit til þeirra álitamála sem þar koma fram. En eins og ég segi, þetta vegur kannski þyngra í samgöngumálunum þar sem færri sveitarfélög hafa sett sér sérstök markmið í fjarskiptamálum þó að þau séu vissulega til.
Ég ætla að nefna nokkra þætti. Það hefur komið fram að hér eru háleit markmið í sambandi við aðgengi og greið fjarskipti, annars vegar í fjögurra ára áætluninni og hins vegar er það sama náttúrlega í tólf ára áætluninni þar sem nokkur verkefni eru skilgreind nákvæmar. En það verður að segjast eins og er — og ég tek þá kannski punktinn upp þar sem hv. þm. Einar K. Guðfinnsson endaði í andsvari sínu við hv. þm. Pétur Blöndal, að í þeim leiðum sem menn hafa farið til að tryggja aðgengi og greið fjarskipti var fjarskiptasjóður settur á laggirnar. Hann átti að fara inn á svæði og tryggja fjarskipti þar sem markaðsfyrirtækin gerðu það ekki.
Ég spurði fyrir tveimur árum ágætan forseta sem situr nú á forsetastóli, sem þá var samgönguráðherra, hvort til stæði að skoða þau sjónarmið sem hv. þm. Einar K. Guðfinnsson kom inn á. Þá voru fyrirtæki sem fóru fyrr á árum inn á þó nokkur svæði á landinu, ekki endilega þau sem voru auðveldust markaðslega heldur bara þar sem áhugamennirnir voru, t.d. á Þórshöfn, á Ísafirði, í Vestmannaeyjum og á Suðurlandi og miklu víðar, um tíu aðilar. Staðreyndin var sú að þeir byggðu upp ágætisþjónustu á meðan ríkisfyrirtækin gerðu ekki neitt á landsbyggðinni. Síðan hefur þróunin orðið sú að þessi fyrirtæki eru þess ekki megnug að keppa við stóru fjarskiptafyrirtækin og nú eru þau farin að þvælast fyrir. Á grundvelli þess að lögin um fjarskiptasjóð voru þannig að fjarskiptasjóður mátti ekki fara inn á þessi markaðssvæði voru sum svæði með alveg ágætisaðstæður til að setja upp góð fjarskipti, ljósleiðara, rafbylgjur eða annað, þau voru því í raun og veru í hálfgerðri spennitreyju þessara litlu fyrirtækja.
Ég spurði hæstv. ráðherra á sínum tíma hvort það stæði til að breyta því. Í ljós kom að um var að ræða um 500 milljónir sem þau fyrirtæki höfðu sett í þetta og auðvitað voru þau skuldsett að einhverju leyti og voru að reyna að fá tekjur inn, en þetta er ómögulegt ástand. Nú þegar lögin um fjarskiptasjóð eru úti og verið er að endurskoða þau og markmið þeirra langar mig að spyrja hæstv. ráðherra og beina því til hans og fjarskiptayfirvalda hvort þetta mál verði ekki skoðað sérstaklega þar sem þetta er alveg ótrúlegt fyrirbæri og kemur víða við á landinu sem dragbítur á að geta sett upp nútímatækni.
Í e-lið um markmið um aðgengileg og greið fjarskipti er sagt: Tryggt verði jafnt aðgengi fjarskiptafyrirtækja að sendistöðum utan þéttbýlis og stuðlað að hóflegri verðlagningu. Sem er hið besta mál, en við fyrstu yfirferð sá ég hvergi það sem ég hefði haldið að ætti að vera efst, að það væri jafnt aðgengi fólks og fyrirtækja að því að fá eðlileg og góð fjarskipti og á hóflegri verðlagningu.
Síðan er sagt í g-lið að yfirfærslu hliðrænnar útsendingar sjónvarps yfir á stafrænt form verði lokið fyrir árslok 2014. Ég held ég hafi séð það einhvers staðar að stefnt væri að því fyrir 2013. Því vil ég spyrja hversu stór svæði á landinu munu þá detta út úr ríkissjónvarpinu og hvernig ætla menn að bregðast við því? Það er víða nákvæmlega sami vandi, að ef fara á að senda það í gegnum þau fjarskiptakerfi sem við höfum í dag en ekki gömlu kerfin þá verður ekkert sjónvarp. Ég þekki það sjálfur búandi á svæði sem er einmitt eitt af þeim sérkennilegu og skilgreindu markaðssvæðum, og ég er með digital sjónvarp, að myndin er meira og minna stopp á löngum köflum og sérstaklega ef veður er með sérstökum hætti og bý ég þó mjög stutt frá sendistaðnum og ætti það ekki að vera vandamálið.
Síðan er í j-lið um markmið um aðgengileg og greið fjarskipti fjallað um — það kemur reyndar víðar fram í þessum markmiðsköflum í sambandi við póstmarkaði og Evróputilskipanir, að tilskipun verði innleidd eftir þörfum með hliðsjón af íslenskum aðstæðum. Ég tek það nú sem jákvætt að það sé tiltekið hér. Ég held að það sé rétt munað hjá mér að Norðmenn hafi hugsað sér að neita að innleiða þetta kerfi af því að það henti ekki norskum aðstæðum. Þá er spurning hvort það hafi verið skoðað nægilega vel, hvort við ættum að fara sömu leið og að kerfi þessarar evrópsku tilskipunar sé einfaldlega þess eðlis að það virki ekki á Íslandi. Við höfum mörg dæmi úr fortíðinni þar sem við höfum verið að innleiða kerfi og tilskipanir frá Evrópusambandinu sem henta ekki á Íslandi, og við hefðum betur sótt um annaðhvort fullkomna undanþágu frá því að innleiða slík kerfi eða sækja um verulegar undanþágur.
Af því að það tengist því sem við vorum að ræða í morgun í atvinnuveganefnd, þar kom jafnræði í dýralæknisþjónustu um land allt til umræðu, þá er rétt að geta þess að einmitt vegna Evróputilskipana höfum við tekið hérna upp evrópska matvælalöggjöf og það hefur þýtt alls kyns breytingar, m.a. á þjónustu dýralækna um land allt, og skráningarkerfi sem sum hver eru hin bestu markmið og tæki og munu bæta ástandið til framtíðar, en um leið er til að mynda gerð sú krafa að dýralæknir sem fer í vitjun á bæ eigi að skrá svo og svo mikið af upplýsingum inn í gagnagrunna. Það væri svo sem ekkert mál ef kerfin væru það góð að viðkomandi gæti gert það á sama stað um leið og vitjun og skoðun væri lokið. En þetta þarf að gerast allt á kvöldin þegar heim er komið við misjafnar aðstæður eftir því hvar menn búa og hversu góða tækni þeir hafa.
Alveg eins og nefnt var áðan hjá ferðaþjónustufyrirtækjunum og öllum öðrum fyrirtækjum sem búa á landsbyggðinni er þetta flöskuháls sem fer stigvaxandi. Það skiptir máli að við veltum því fyrir okkur þegar við erum að innleiða Evróputilskipanir hvort þær hreinlega henti á Íslandi eða hvort við þurfum hreinlega lengri tíma til að byggja upp. Þá vil ég líka segja, eins og ég sagði í samgöngumálunum, að það er aðdáunarvert hvað við höfum þó getað gert á undanförnum áratugum og erum búin að byggja gríðarlega öflug kerfi upp þó að við viljum auðvitað hafa þau enn betri.
Ég ætla að nefna hérna örlítið um markmið um örugg fjarskipti. Sagt er að kortleggja og skilgreina eigi mikilvæga fjarskiptainnviði og móta viðbragðsáætlanir, m.a. vegna náttúruvár, farsótta eða netárása. Mig langar að spyrja hvort það sé ekki rétt að við samþykktum á fjárlögum fyrir jól að setja fjármuni í að koma upp kerfi til að geta gefið út aðvaranir til allra á ákveðnum svæðum ef til náttúruvár kæmi og hvort það sé ekki inni í þessari áætlun. Ég get ekki alveg séð það nákvæmlega en það hlýtur eiginlega að vera þar, að setja upp kerfi þar sem sent er út í alla síma, óháð kerfum, upplýsingar um yfirvofandi náttúruvá, eldgos, jarðskjálfta, flóð eða stórslys. Það hlýtur að vera í þessari áætlun. Ég býst við að það sé þó að ég hafi ekki séð það við fyrstu sýn.
Herra forseti. Ég ætla svo sem ekki að hafa þetta lengra. Kannski aðeins um markmið um hagkvæmni og skilvirkni. Talað er um að gjaldskrá tíðna verði endurskoðuð með tilliti til aukinnar útbreiðslu og að auðlindagjald fyrir tíðnir verði útfært og innleitt. Þá er spurningin — um leið og þetta á að vera eins hagkvæmt og hægt er og gjaldskráin fyrir fólk væntanlega með jafnræði að leiðarljósi, að það verði jafndýrt fyrir alla landsmenn eða að það verði alla vega jöfnuður í því — hvort þar verði þá ekki að fara hóflega að og hvort gjaldið sé hugsað sem skattur inn í svokallaðan auðlindasjóð, sem annar stjórnarflokkurinn hefur lagt talsvert á sig að tala fyrir, eða hvort þetta sé eitthvert óverulegt gjald til að reyna að stýra fyrst og fremst útboðunum og samkeppni á milli fyrirtækja en verði ekki það íþyngjandi að það hafi veruleg áhrif á verð til neytenda.
Ég hef lokið máli mínu, herra forseti.