tólf ára fjarskiptaáætlun fyrir árin 2011--2022.
Herra forseti. Þegar skipuleggjari við græna skrifborðið í ráðuneytinu ætlar að fara að skipuleggja eitthvað er betra að hann viti um hvað málið fjallar. Ég er ekki viss um að hann sé eins næmur á þær breytingar sem verða í þjóðfélaginu og umhverfinu og í öllum heiminum og bisnessmaðurinn sem ætlar sér að hagnast á því að koma með einhverjar nýjungar. Það er viðbúið að embættismaðurinn við græna borðið stöðvi frekar þróun en hitt vegna þess að hann vill halda upp á barnið sitt eða eitthvað slíkt og hann hefur í rauninni ekki sömu hagsmuni af því að koma breytingum í gegn.
Við erum að upplifa mjög miklar breytingar, bæði er verið að nota núna rafsegulbylgjur til að koma boðum í gegn og í gegnum gervitungl o.s.frv. og svo gæti verið að ef hið opinbera einblínir of mikið á eina lausn sé það bara ekki sú lausn sem verður ofan á eftir jafnvel fimm eða tíu ár. Þróunin er svo hröð. Ég minni bara á breytinguna síðustu fimm árin í símunum sem við berum á okkur, nú eru þetta orðnar litlar tölvur og alveg gjörbylting og það gerðist án þess að það væri skipulagt einhvers staðar ofan frá. Það er nefnilega málið að breytingarnar gerast án þess að það sé einhver ríkisáætlun, einhver fimm ára áætlun um slíkt. Það var það sem ég varaði við. Ríkisáætlun getur verið ágæt til að tryggja að arkitekt geti búið í Svarfaðardal og unnið þar að verkefninu sínu í Hong Kong, og það sé tryggt og þá með styrkjum að viss svæði sem eru út undan njóti þessa. En þetta má ekki verða þannig að einhver ákveðin tækni sé tekin fram yfir aðra.