140. löggjafarþing — 53. fundur,  2. feb. 2012.

Farsýslan, stjórnsýslustofnun samgöngumála.

272. mál
[12:55]
Horfa

Ásbjörn Óttarsson (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil byrja á að þakka hæstv. ráðherra yfirferðina á frumvarpinu. Eins og okkur er kunnugt strandaði þetta mál á vorþinginu í fyrra, það dagaði uppi og var ekki klárað. Á því þingi vann hv. samgöngunefnd sem þá starfaði mjög mikið í málinu og lagði mikla vinnu í það. Málið var tekið úr nefnd í maímánuði af hálfu meiri hlutans og lagt til að farið yrði í sameiningu stofnana en þó með því skilyrði af hálfu meiri hlutans, sem ég stóð ekki að, eða gerð sú krafa að ef sameining gengi eftir sem átti að gerast á síðasta ári yrði hún með þeim hætti sem kemur mjög skýrt fram í nefndaráliti meiri hlutans — ég held að ég geti fullyrt að það var samdóma niðurstaða allra hv. þingmanna í samgöngunefnd sama hvar í flokki þeir standa — að fara í frekari sameiningar en lagt er til í þessu frumvarpi. Þá var vörðuð sú leið fyrir hæstv. innanríkisráðherra að skoða á þeim tímapunkti möguleika á að fara í frekari sameiningar. Það var meira að segja gert með þeim hætti að meiri hlutinn sem tók málið út og lagði til að það yrði samþykkt setti bráðabirgðaákvæðið inn í nefndarálitið þar sem lagt var til að það yrði samþykkt. Það fól í sér að menn vildu gefa hæstv. innanríkisráðherra mjög stuttan tíma, því að þá stóð til að setja lögin fyrir hálfu ári síðan og að eigi síðar en 1. febrúar, sem var nú bara í gær, skyldi hæstv. innanríkisráðherra leggja fram skýrslu á þinginu um það hvernig hann hygðist koma á frekari sameiningum.

Ég verð að segja, virðulegi forseti, að það veldur mér miklum vonbrigðum að málið skuli koma nánast óbreytt inn í þingið núna á milli þinga. Þá er spurning mín til hæstv. innanríkisráðherra: (Forseti hringir.) Skoðaði hæstv. innanríkisráðherra og ráðuneytið eitthvað í millitíðinni þær tillögur sem komu frá hv. samgöngunefnd?