140. löggjafarþing — 53. fundur,  2. feb. 2012.

landslénið .is og önnur íslensk höfuðlén.

268. mál
[16:03]
Horfa

innanríkisráðherra (Ögmundur Jónasson) (Vg) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir þessar ábendingar. Hann vill að málið verði skoðað í nefnd. Ég hef sjálfur lagt áherslu á að það verði gert. Ég hef meðal annars vísað til þeirra þátta sem hv. þingmaður vekur athygli á, upphæða og viðmiðunarmarka sem sett eru við gjaldtöku. Hann vill einnig ræða gildistíma leyfisins. Að sjálfsögðu hlýtur nefndin að skoða þessi mál eins og ég gat um með hagsmuni notenda, skattgreiðenda, í huga fyrst og fremst en þó að því tilskildu jafnframt að því fyrirtæki sem sinnir þessari starfsemi sé sýnd full sanngirni.