barnalög.
Herra forseti. Ekki þarf að koma á óvart í ljósi lokaorða hv. þingmanns að ég er sammála honum. Það er þó eitt sem mig langar til að ræða aðeins meira. Áherslan í þessari umræðu hefur verið mikil á hina svokölluðu dómaraheimild en hv. þingmaður kom hér inn á aðra hluti sem eru líka mjög mikilvægir og ég tel að þurfi að ræða, og því miður eru horfur á að þeir falli í skuggann af stærsta deilumálinu varðandi þetta frumvarp sem er dómaraheimildin, en þetta varðar lögheimilið.
Mér hefur fundist mjög áhugavert, sem er í rauninni órætt í íslensku samfélagi, að sjá að á sama tíma og áherslan hefur verið á sameiginlega forsjá, sem er orðin meginregla og jöfn búseta barns er líka orðin mjög algeng og kannanir sýna að slíkt gefur góða raun, þá gerir löggjafinn sífellt meira úr því að barnið skuli búa á einum stað og lögheimili skuli vera eitt. Mér sýnist vera tilhneiging til þess í frumvarpinu að hengja meiri réttindi, meiri ákvarðanatökuheimildir og slíkt á lögheimilið. Það er greinilega vilji löggjafans að búa til ... (Gripið fram í: Ráðherrans.) vilji ráðherrans væntanlega, vilji framkvæmdarvaldsins sem leggur fram frumvarpið að gera lögheimilið að næsta ágreiningsefni. Menn horfast engan veginn í augu við þá þróun sem hefur orðið, að foreldrum gengur yfir höfuð ágætlega að starfa saman. Ég hef mikinn áhuga á að leggja fram frumvarp um að tekin verði upp jöfn búseta, (Forseti hringir.) að við leyfum tvöfalt lögheimili og horfumst þar með í augu við að margir foreldrar hafa ákveðið að hafa það þannig. Og þá kemur að spurningu minni til hv. þingmanns: Mundi hann styðja slíkt?