140. löggjafarþing — 53. fundur,  2. feb. 2012.

barnalög.

290. mál
[18:22]
Horfa

innanríkisráðherra (Ögmundur Jónasson) (Vg) (andsvar):

Hæstv. forseti. Það segir mér nú reyndar lítið þegar foreldrar talast við. Það segir nú ekki alla söguna, en 50% talast hreint ekki við þótt nefnd hafi verið sameiginleg forsjá. Ég vitnaði í skýrslu sem segir að reynslan af þessum dómapraxís sé ekki sú að það hafi orðið til að bæta ástandið, en það sé allt til athugunar og könnunar.

Ég ítreka að þessi mál þarf að sjálfsögðu að skoða með hliðsjón af reynslunni og við þurfum að reyna að komast að bestu niðurstöðunni.

Ég ætla ekki að fullyrða um hlutföllin sem við tölum um hér en ég hygg að hv. þingmaður sé að vísa í niðurstöður í forsjárdeilumálum. Ég tel að hann hafi fyrr í umræðunni verið að vísa til niðurstöðu úr dómum — kannski fer ég með rangt mál þar — að þegar dæmd hafi verið forsjá hafi móðirin fengið hana í yfirgnæfandi meiri hluta, sem er rétt. En ég held því fram að það sé ekki nær einhlítt að það hafi verið móðirin, heldur einnig faðirinn, og vísaði þar í hlutföll á bilinu 70% á móti 30%, en ég tel að hv. þingmaður sé að horfa á niðurstöður í forsjárdeilumálum sem ekki eru öll fyrir dómum. Það eru atriði sem við getum fengið útkljáð með því að fá tölurnar endanlega á blað.

Ég ítreka að ég þakka fyrir umræðuna um þetta mikilvæga mál.