140. löggjafarþing — 54. fundur,  3. feb. 2012.

störf þingsins.

[10:54]
Horfa

Helgi Hjörvar (Sf):

Virðulegur forseti. Það er full ástæða fyrir stjórnarmeirihlutann að þakka fyrir þær ágætu kveðjur sem voru settar fram í upphafi umræðunnar vegna afmælis ríkisstjórnarinnar á miðvikudaginn var. Mér hefur þótt synd að þar var ekki minnst á annað og raunar jafnvel merkilegra afmæli sem er afmæli heimastjórnarinnar. Þannig er að afmæli ríkisstjórnar Jóhönnu Sigurðardóttur ber einmitt upp á sama dag og afmæli heimastjórnarinnar og gefur þannig heimastjórnarmönnum kost á að fagna í senn tveimur merkisdögum.

Það fer líka vel á því að afmæli ríkisstjórnarinnar beri upp á þann dag því að í raun hefur allt hennar starf verið starf í þágu heimastjórnar til að reyna að tryggja að við höldum efnahagslegu sjálfstæði okkar og sjálfsforræði sem þjóð. Við óttuðumst auðvitað mörg að þar værum við í mikilli tvísýnu þegar lagt var af stað í þennan leiðangur. Ég held að við getum nokkuð örugglega sagt að þessum þremur árum liðnum að við höfum lagt grunn að nýrri sókn, forðað þeim mestu hættum sem uppi voru og getum horft af vongleði til framtíðar, ekki bara ríkisstjórnarinnar vegna heldur auðvitað fyrst og fremst vegna dugnaðar fólksins í landinu og hinna traustu atvinnuvega. Það var fagnaðarefni í morgun að heyra til að mynda fréttirnar af vöruskiptajöfnuðinum í janúar þar sem fram kemur að við flytjum sem fyrr út umtalsvert meiri verðmæti en við flytjum inn. Það leggur auðvitað grunn að lífsgæðum í landinu til frambúðar.

Það er samt full ástæða til að vara við og minna á að þó að við getum verið vonglöð er ekki kominn tími til að ausa úr ríkissjóði Íslands. Ríkissjóður Íslands er enn rekinn með halla. Menn verða enn að ganga hægt um gleðinnar dyr og fara varlega í að stofna til nýrra ríkisábyrgða eða auka á hallareksturinn (Forseti hringir.) því að við þurfum þvert á móti að auka tekjur ríkissjóðs og halda áfram að draga úr útgjöldum hans til að við megum (Forseti hringir.) hætta að safna skuldum á herðar komandi kynslóðar.