fullgilding Evrópuráðssamningsins um vernd barna gegn kynferðislegri misneytingu og misnotkun.
Virðulegi forseti. Hv. þingmenn sáu í fréttum fyrradagsins að í nýlegri úttekt sem UNICEF gerði og náði meðal annars til Íslands var gerð athugasemd við það að Ísland hefði ekki staðfest og fullgilt Evrópusamninginn um vernd barna gegn kynferðislegri misnotkun og kynferðislegri misneytingu. Sú þingsályktunartillaga sem ég mæli fyrir bætir úr því en með henni er leitað heimildar Alþingis til að fullgilda þann samning sem var upphaflega gerður 2007.
Tilgangur þessa samnings er þríþættur. Í fyrsta lagi að koma í veg fyrir og berjast gegn kynferðislegri misnotkun og kynferðislegri misneytingu barna. Í öðru lagi að vernda réttindi barna sem verða fyrir kynferðislegu ofbeldi. Síðast en ekki síst er ætlunin sú með þessum samningi að efla samstarf í baráttunni gegn kynferðislegum glæpum gegn börnum hjá hverri þjóð og á alþjóðavettvangi.
Þessi samningur markar að mínu viti tímamót að því leytinu til að hann er fyrsti alþjóðlegi gerningurinn þar sem kynferðisleg misnotkun barna í hinum ýmsu myndum er gerð refsiverð. Þetta er yfirgripsmikill samningur. Í honum er kveðið á um forvarnir, ákveðin háttsemi gerð refsiverð, fjallað um stuðning við börn sem hafa orðið fyrir kynferðisofbeldi, sömuleiðis um meðferð kynferðisbrotamanna og hvatt til ríks alþjóðlegs samstarfs á þessu sviði. Samningurinn leggur þannig til nýjar leiðir til að berjast gegn kynferðislegu ofbeldi gegn börnum í hefðbundnum skilningi en sömuleiðis gegn barnavændi, barnaklámi og ferðaþjónustu sem beinlínis beinist að því að misnota börn kynferðislega. Þessi samningur skapar líka grundvöll til að sporna við því þegar fullorðnir einstaklingar falast af ásettu ráði eftir börnum, t.d. á spjallrásum, í kynferðislegum tilgangi eða láta börn vísvitandi verða vitni að kynferðislegri misnotkun eða kynferðislegum athöfnum.
Samhliða þessari þingsályktunartillögu, frú forseti, hefur hæstv. innanríkisráðherra lagt fyrir þetta þing frumvarp um breytingu á almennum hegningarlögum og barnaverndarlögum. Með samþykkt þess mundi hið háa Alþingi tryggja að Ísland gæti staðið við þær skuldbindingar sem á það verða lagðar með samþykkt og fullgildingu þessa samnings. Ég hef þegar sagt að hann brjóti að ýmsu leyti í blað. Hann er ákaflega merkilegur, hann er fyrsti alþjóðasamningurinn þar sem sett er fram krafa um að sett verði í refsilög ákvæði gegn misnotkun barna í ýmsum myndum, þar með töldum þegar slík misnotkun á sér stað inni á heimili barns eða innan fjölskyldu þess. Samningurinn leggur líka mikilvæga áherslu á forvarnir, þar á meðal hvað varðar ráðningu fólks sem vinnur með börnum og vitundarvakningu þess um réttindi barna og enn fremur um það hvað bendi til þess að barn kunni að vera þolandi slíks ofbeldis.
Í samningnum er líka gert ráð fyrir fræðslu fyrir börn. Í honum er sömuleiðis kveðið á um að menn sem óttast að þeir geti framið eitthvert þeirra brota sem lýst eru refsiverð samkvæmt samningnum geti leitað sér aðstoðar til að koma í veg fyrir það. Þá inniheldur samningurinn ákvæði um nýja tegund ofbeldis, eins og kynferðislega misneytingu barna fyrir tilstilli upplýsinga- og samskiptatækni eins og ég hef þegar rakið að svolitlu leyti. Á því hafa engir aðrir alþjóðasamningar tekið.
Þá vek ég sérstaklega eftirtekt á því sem nokkrum sinnum hefur á undangengnum árum verið rætt í tengslum við þennan málaflokk, að samningurinn tekur með framsækni á því ógnvænlega vandamáli sem ferðaþjónusta tengd misnotkun barna er. Það er gert með því að kveða á um að hver samningsaðili skuli fella undir sína refsilögsögu öll brot sem framin eru erlendis af ríkisborgara hans eða einstaklingi sem hefur fasta búsetu á yfirráðasvæði hans, jafnvel þótt brotið sé ekki refsivert samkvæmt lögum þess ríkis þar sem brotið er framið. Þar að auki má í samningnum lesa hugmyndir um eftirlitskerfi til að fylgjast með framkvæmd þessa samnings.
Því miður er það dapurleg staðreynd að kynferðisleg misneyting og misnotkun á börnum hefur aukist óhugnanlega á síðustu árum og það er ekki síst vegna tilkomu nýrrar upplýsinga- og fjarskiptatækni eins og tíðar fregnir af skipulögðum hringjum barnaníðinga á netinu sanna. Samkvæmt upplýsingum sem Evrópuráðið hefur aflað benda rannsóknir til þess að eitt af hverjum fimm börnum verði fyrir kynferðislegu áreiti eða ofbeldi á æskuárum sínum. Við getum öll verið sammála um það, efa ég ekki, að hér er um að ræða svívirðilegar athafnir af verstu gerð sem hafa í för með sér líkamlegar og andlegar þjáningar fyrir börnin sem fyrir þeim verða. Afleiðingarnar eru öryggisleysi eða skömm sem því miður fylgir oft þeim börnum sem fyrir hafa orðið fram á fullorðinsaldur og allt fram á grafarbakkann. Þetta þekkjum við. Þetta eru gróf brot á mannréttindum sem má ekki láta kyrr liggja. Sem betur fer hefur þagnarmúrinn í kringum þessa glæpi smám saman hrunið á síðustu áratugum. Það er þó ekki nóg að þolendur geti sagt frá, heldur verður samfélagið að vera vel vopnað í baráttunni gegn þessum voðaverkum. Meðal annars er brýnt að tryggja að lagaramminn sé þannig úr garði gerður að hann tryggi börnum eins ríka vernd og hugsanlega er unnt. Í því tilliti getur alþjóðasamstarf haft veigamikil áhrif og Evrópuráðið sem hefur jafnan látið þessi mál til sín taka, eins og þau okkar sem í því hafa setið, hefur nú skorið upp herör gegn kynferðislegu ofbeldi gegn börnum. Samningurinn sem við ræðum hér er mikilvægur þáttur í þeirri viðureign.
Þess vegna er þessi þingsályktunartillaga og frumvarp sem henni tengist flutt af ríkisstjórninni. Ég legg til, virðulegi forseti, að þegar þessari umræðu sleppir verði tillögunni vísað til hv. utanríkismálanefndar.