fullgilding Evrópuráðssamningsins um vernd barna gegn kynferðislegri misneytingu og misnotkun.
Í fyrsta lagi er sú nálgun sem felst í samningnum skilgreind af höfundum samningsins þannig að hún sé heildstæð, þ.e. hún á að ná til sem flestra sviða og girða með aðgerðum á sem flestum sviðum fyrir að slíkir verknaðir geti átt sér stað svo það liggi algjörlega fyrir af því að hv. þingmaður spurði sérstaklega um heildstæða nálgun. Hún er til staðar í samningnum. Það er síðan niðurstaðan eftir að hafa skoðað þetta mál, og það hefur verið skoðað í þaula, að þær lagabreytingar sem ég hygg að hæstv. innanríkisráðherra hafi þegar lagt fyrir Alþingi, dugi til þess að við getum uppfyllt allar þær kvaðir sem er að finna í þessum samningi og á okkur leggjast. Þá má ekki gleyma því að ákvæðin í samningnum beinast að því að koma í veg fyrir kynferðislega misneytingu á börnum utan landsteina sem og innan landsteina, innan heimilis, þar sem börn eru við frístundaiðkun, í skólum o.s.frv. Það er reynt að ná sem best utan um þetta.
Það eru líka opnaðir möguleikar á að auðvelda þeim mönnum sem hafa í sér einhvers konar hvatir og verða þess sjálfir áskynja að leita sér lækninga ef hægt er. Sömuleiðis eru reglur um hvernig á að reyna að koma í veg fyrir að þeir sem starfa með börnum hafi í sínu fari einhverjar vísbendingar um að þeir gætu orðið uppvísir að slíkri háttsemi. Það mun vera umdeilanlegt og menn munu tefla fram mannréttindarökum þar. Við höfum heyrt þau áður.
Enn fremur er reynt að koma því svo fyrir að í gegnum menntastofnanir okkar séu þeir sem uppfræða börn okkar líka í stakk búnir til og hafi það sem verkefni að uppfræða börnin um réttindi þeirra. Partur af vandamálinu er að þau hafa ekki alltaf skilið hvers (Forseti hringir.) þau eru megnug og hvaða rétt þau hafa gagnvart þeim sem fullorðnir eru.