málefni safna, munnleg skýrsla mennta- og menningarmálaráðherra.
Frú forseti. Ég vil byrja á því að þakka hæstv. menntamálaráðherra fyrir að hafa sýnt það frumkvæði að ræða skýrslu Ríkisendurskoðunar um Náttúruminjasafnið og í raun báðum ræðumönnum hér á undan fyrir að sýna um leið þessum málaflokki þá virðingu sem hann á skilið. Þá erum við hér í betra tómi til að fara ítarlega yfir þessa skýrslu en erum ekki að tala endalaust í fyrirsagnastíl á knöppum tveimur mínútum.
Ég þakka líka hæstv. ráðherra fyrir ræðuna. Ég tek undir gagnrýni hennar á skýrslu Ríkisendurskoðunar. Þó að ég gæti sem stjórnarandstöðuþingmaður sagt eitt og annað held ég að þetta sé hárrétt hjá ráðherranum, ég held að Ríkisendurskoðun hafi ekki tekið tillit til þeirrar hagræðingar sem hæstv. menntamálaráðherra hefur þurft að standa fyrir, erfiðra ákvarðana, frestunar bygginga og annarra hluta. Þetta er nokkuð sem einmitt ráðherrar verða að standa fyrir, það hefur hæstv. ráðherra gert og meðal annars líður þetta safn fyrir.
Það er greinilegt að við þurfum að gera betur, allir flokkar að mínu mati. Ég held að það sé óhjákvæmilegt fyrir mig að fara örlítið yfir söguna í þessu samhengi sem mjög er farið inn á, m.a. í skýrslu Ríkisendurskoðunar. Ég held að margt rétt komi fram í skýrslu Ríkisendurskoðunar sem allt þingið verður að taka til sín. Þetta eru lög sem voru samþykkt samhljóða. Þeim var breytt mjög í meðförum þingsins. Það var ekki þannig að á þinginu væri eitthvert kverkatak varðandi lagaumgjörðina, síður en svo. Þáverandi menntamálanefnd fór mjög vel yfir ýmsar athugasemdir. Ég hefði gjarnan viljað sjá þessar athugasemdir Ríkisendurskoðunar þá. Hún hefur komið með athugasemdir og ábendingar um að eiginlega allt frá árinu 2001 þegar safnalögin eru samþykkt, þrjú höfuðsöfn samþykkt, Þjóðminjasafnið, Náttúruminjasafnið og Listasafn Íslands, hafi ekkert verið gert.
Ég held að við verðum að tala opinskátt, hluti af því að erfitt var að koma málum áfram var að fá samþykkt lög um náttúruminjasafn, taka málin meðal annars frá umhverfisráðuneytinu. Það var togstreita í kerfinu. Það er einfaldlega erfitt, var þá og er greinilega enn, núna þegar menn eru að endurskipuleggja Stjórnarráðið. Það er mjög erfitt að færa mál milli ráðuneyta. Það er alveg sama hvaða flokkar eiga í hlut, allir flokkar á þingi hafa komið nálægt þessari sögu. Hluti af því að þetta var ekki skýrara og skarpara er að menn hjuggu ekki strax á ákveðna hnúta og sumir vildu einfaldlega ekki höggva á hnútana. Kannski hefðu sumir viljað hafa hnútana áfram.
Alveg frá því að ég byrjaði á þingi hef ég skynjað mikinn vilja hjá þingmönnum til að koma upp öflugu náttúruminjasafni. Það er mín skoðun enn þann dag í dag.
Ástæðan fyrir því að við fórum af stað með það að koma á lögum um náttúruminjasafn var að við héldum, og ég hélt það í einlægni, að þannig gætum við eftir sex eða sjö ár lagaleysis um náttúruminjasafn þokast áfram. Það var ákveðið að fara þá leið að búa til lagaumgjörð um náttúruminjasafn og fara síðan í stefnumótun. Það kemur fram að í marsbyrjun 2008 skipaði þáverandi menntamálaráðherra átta manna stýrihóp til að vinna að stefnumótuninni um framtíð Náttúruminjasafnsins og auðvitað var reynt að ná þverpólitísku og þverfaglegu samþykki til að líta til framtíðar.
Í stefnumótuninni fólst meðal annars að horfa til þess að árið 2013 væri lokaárið í því að koma upp öflugu húsi náttúruminjasafns til að sýna náttúruminjarnar okkar, gera eins og hæstv. ráðherra sagði svo réttilega áðan, horfa til nútímans, nútímatækninnar, gera þetta lífvænlegt, snertanlegt, áþreifanlegt og lifandi safn. Þannig sáum við það og horfðum alveg fram til ársins 2013.
Á árinu 2007 voru ýmsar húsbyggingar í bígerð. Ég verð að segja eins og er að það var ekki mesta aðhaldið af hálfu stjórnarandstöðunnar í ríkisfjármálum. Menn kölluðu mjög eftir svona húsi sem hefði þá kostað 1,5–2 milljarða. Við vorum þá að klára háskólatorg. Við vorum þá að byrja langþráða hönnun á húsi fyrir Árnastofnun, hús íslenskra fræða, sem ég vona að hæstv. ráðherra nái að ýta áfram. Ég veit að hlutirnir eru erfiðir og ég held að við verðum að skilja þá aðstöðu sem hæstv. ráðherra er í. En þetta voru þeir hlutir sem þá var unnið að. Auk þess voru þá þegar uppi hugmyndir um hús fyrir Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur — og eðlilega um Náttúruminjasafnið. En togstreitan í kerfinu, ég undirstrika það, hefur að mínu mati verið til trafala. Ég er sammála þeirri nálgun sem hæstv. ráðherra leggur hér fram, við verðum að fara í þetta verk sameiginlega og þegar við erum að tala um það að við hér á þingi tökum á þessu verðum við líka að þora að leysa óþægilegu hlutina sem fylgja því að gera rammann um Náttúruminjasafnið skýrari.
Ég hjó eftir því líka að hæstv. ráðherra sagði að við þyrftum að hugsa hlutina upp á nýtt. Það getur vel verið að það sé ekki lengur rétt hjá mér að við eigum að hafa þessi þrjú höfuðsöfn í ljósi efnahagsaðstæðna. Ég varpa fram spurningunni: Eigum við að sameina höfuðsöfnin þrjú í eina yfirstofnun, Safnastofnun? Ég veit það ekki, ég held að við eigum að skoða það til að skoða hagræðingu alveg eins og við eigum að minnsta kosti að ýta undir samvinnu á milli þessara stofnana sem nú þegar er byrjuð, m.a. í tengslum við safnahúsið á Hverfisgötu. Eins og við höfum ýtt undir samvinnu og samráð háskólastofnana held ég að við eigum að huga að því þarna líka.
Mín skoðun er engu að síður enn sú að við eigum að stefna að öflugu náttúruminjasafni. Verum samt raunsæ. Við komum því ekki áleiðis fyrr en eftir einhver ár. Aðrar stofnanir eru komnar lengra sem við verðum að hefjast handa við. Eins og ég gat um áðan eru það hús fyrir Árnastofnun sem og Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur.
Hvað getur þingið þá gert? Ég held að við í allsherjar- og menntamálanefnd munum fagna því samstarfi sem hæstv. ráðherra boðar. Okkur ber að taka þá ábyrgð alvarlega. Ég er reiðubúin að gera það. Ég held að margt gott hafi verið gert, en ég er líka reiðubúin að læra af þeim mistökum sem hafa verið gerð í fortíðinni. Það verður þó að segjast eins og er að ekkert hefur miðað síðustu þrjú árin. Ég gæti gagnrýnt það. Ég gæti gagnrýnt ráðherra fyrir að hafa ekki komið með stefnumótun síðustu þrjú árin. En við verðum að skilja aðstæður. Þess vegna verðum við að reyna að hafa verkferlið skýrara. Við verðum að segja nákvæmlega hvað á að heyra til náttúruminjasafns og hvað á að heyra (Forseti hringir.) til Náttúrufræðistofnunar. Við á Alþingi getum ekki leikið tveimur skjöldum. Við getum ekki látið hæstv. ráðherra sitja einan (Forseti hringir.) eftir með málið á sinni könnu. Hún kallar eftir samstarfi. Til þess er ég (Forseti hringir.) reiðubúin.
(Forseti (SIJ): Forseti biður þingmenn um að virða ræðutíma.)