140. löggjafarþing — 55. fundur, 13. feb. 2012.
varamaður tekur þingsæti.
Eins og tilkynnt var á vef þingsins 6. febrúar sl. barst bréf frá Atla Gíslasyni, 4. þm. Suðurk., um að hann geti ekki sótt þingfundi á næstu vikum vegna dvalar erlendis. Sama dag tók sæti á Alþingi Arndís Soffía Sigurðardóttir. Hún hefur áður tekið sæti á Alþingi og er boðin velkomin til starfa á ný.