140. löggjafarþing — 55. fundur,  13. feb. 2012.

vísun skýrslna Ríkisendurskoðunar til nefnda.

[15:01]
Horfa

Forseti (Ásta R. Jóhannesdóttir):

Með bréfi, dags. 7. febrúar sl., hefur forseti óskað eftir því við stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd, samanber ákvæði 8. töluliðar 1. mgr. 13. gr. þingskapa, að hún fjalli um skýrslu Ríkisendurskoðunar um skuldbindandi samninga – 5, um sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneyti.

Þá hefur forseti með bréfi, dags. 7. febrúar sl., óskað eftir því við fjárlaganefnd, samanber ákvæði 5. töluliðar 13. gr. þingskapa, að hún fjalli um skýrslu Ríkisendurskoðunar um ríkisábyrgðir og fjárhagslegar skuldbindingar ríkisins sem ekki koma fram í fjárlögum og fjáraukalögum.