Evrópumál.
Frú forseti. Auðvitað er sá fiskur sem liggur undir steini hjá hv. þingmanni óskaplega ómerkilegur. Hann lætur að því liggja að ég muni koma upp í ræðustól og gefa honum undir fótinn með það að ég muni leka niður og ekki standa á hagsmunum Íslands, hvort sem það er í sambandi við makríl eða aðrar viðræður við Evrópusambandið. Mér finnst óskaplega heimóttarlegt og ódýrt að gera út á hluti af þessu tagi.
Ég veit að vísu að þetta er mjög í tísku sums staðar í bænum, t.d. eru uppi í Hádegismóum gjarnan skrifaðir um þetta leiðarar og Reykjavíkurbréf og kannski er hv. þingmaður svo beintengdur inn í þær veitur, þá vessa, að honum er ekki sjálfrátt þegar hann kemur í ræðustól á Alþingi (Gripið fram í.) og fer með þessa þvælu. (Gripið fram í.)
Varðandi makrílinn stendur ekki annað til en að standa fast á hagsmunum Íslands í því máli. (Gripið fram í.) Ég er mætavel upplýstur um það hversu stórt og mikilvægt hagsmunamál þar er á ferðinni fyrir Ísland og þarf ekki annað en að skoða verðmætin frá síðustu vertíð sem og að það er ótvíræður réttur okkar sem strandríkis að standa fast á því að við eigum (Forseti hringir.) eðlilegt tilkall til hlutdeildar í þeim stofni sem er farinn að dvelja hér innan lögsögunnar stóran hluta ársins ef ekki það allt. (SDG: Ekki ESB-samningur um makríl?) Æ, þegiðu. (Gripið fram í: Hvað sagði hann?) (Gripið fram í: Æ, þegiðu.) (Gripið fram í.)