140. löggjafarþing — 55. fundur,  13. feb. 2012.

málfrelsi grunnskólakennara.

[15:33]
Horfa

mennta- og menningarmálaráðherra (Katrín Jakobsdóttir) (Vg):

Virðulegi forseti. Málfrelsi er mjög mikilvægt og ég held að við afgreiðum það ekki á tveimur mínútum í ræðustól. Þetta er mjög djúp umræða. Ég legg fyrst og fremst áherslu á að sú löggjöf sem við eigum, um leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla, er mjög nemendamiðuð. Hún byggist á þeim grunnforsendum sem hv. þingmaður nefndi, að nemendum líði vel í skóla og að þar sé þeim búinn öruggur staður og góð menntun. Ég held að það séu sjónarmiðin sem við eigum að hafa að leiðarljósi og það eru þau sjónarmið sem við sjáum í þessum siðareglum Kennarasambandsins sem ég vísaði í áðan. Þegar um er að ræða einstök dæmi verðum við hreinlega að taka afstöðu til þeirra í hvert sinn, ég held að það verði ekki gert með skerðingum í lagaramma heldur verðum við að treysta skólastjórum og skólameisturum til að bregðast við.

Ég hef séð slík dæmi, til að mynda innan framhaldsskóla þar sem hefur verið brugðist við, þannig að ég held að við verðum líka að treysta á að við sem störfum innan skólakerfisins, hvort sem við erum ráðherrar eða skólameistarar, störfum samkvæmt almennri (Forseti hringir.) siðgæðisvitund í þessum málum og það eigi við um kennara líka.