verndun og nýting.
Frú forseti. Mér fannst svör hæstv. umhverfisráðherra hér áðan við fyrirspurn hv. þm. Jóns Gunnarssonar ekki nægilega tæmandi er varðar þann fréttaflutning sem var af rammaáætlun og því hvernig hæstv. ráðherra lítur það mál. Mig langar því að spyrja hæstv. ráðherra nokkurra spurninga.
Í ljósi þess að þessi rammaáætlun var sett af stað fyrir rúmlega sex árum, þessi 2. áfangi, og hefur kostað um hálfan milljarð, og í ljósi þess að þegar þetta fór af stað töldu ýmis öfl í samfélaginu að þangað til niðurstaða rammaáætlunar lægi fyrir ætti ekkert að gera langar mig að spyrja hæstv. ráðherra hvort þær yfirlýsingar sem hæstv. ráðherra er með, að þetta eigi ekki endilega að fela í sér endanlega úthlutun á gæðum náttúrunnar, hvorki til nýtingar né væntanlega þá til verndar, vegna þess að það er auðvitað ákvörðun út af fyrir sig að taka verkefni sem menn hafa verið að skoða hvort á að nýta sem virkjanakost eða verndarkost og ákveða að það skuli vernda, séu eðlilegar. Er það eðlilegasti framgangsmátinn og forgangsröðunin sem ýmsir hafa haldið fram að það eigi að geyma til að mynda jöklana og vatnsföllin til komandi kynslóða til að virkja í því samhengi að við erum að fara inn í hlýskeið og magn jöklanna renni þá náttúrlega ókeypis til sjávar á næstu áratugum og verði þar af leiðandi aldrei nýtt til uppbyggingar á Íslandi, ekki handa einni einustu komandi kynslóð?
Mig langar að heyra álit hæstv. ráðherra á þessum sjónarmiðum í ljósi þess að ráðherrann hefur á liðnum tíma sínum í ráðuneytinu verndað alls kyns hluti, lagt til verndun, (Forseti hringir.) en sagt á móti að það hefði aldrei komið til að það ætti að virkja nokkurn skapaðan hlut á grundvelli sömu rammaáætlunar.