verndun og nýting.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrirspurnina. Hann er greinilega nokkuð tilfinningatengdur í sinni spurningu sem er gott því að hér er um að ræða stórmál.
Það er rétt sem kemur fram í máli þingmannsins, það er ákvörðun í sjálfu sér að vernda og sumir hafa meira að segja sagt að það sé ákveðin nýting að vernda. Það er spurning hvaða orðalag maður notar á hverjum tíma. Hins vegar er ákvörðun um nýtingu í þágu orkuöflunar að jafnaði mun síður afturkræf en ákvörðun í þágu verndar. Eðli málsins samkvæmt er til að mynda snúið að endurheimta það land sem er undir Hálslóni en það væri hægt að fara í virkjanir á svæðum sem hafa verið sett til hliðar.
Þetta er því ekki alveg sambærilegt þannig að þegar ég segi í tilvitnaðri frétt í morgun að hér sé ekki um að ræða endanlega niðurstöðu þýðir það, eins og kom fram í mínu fyrra svari, að ákvörðunin sem mun liggja fyrir þegar þingið hefur afgreitt rammaáætlun snúist um það að þeir kostir sem verða flokkaðir í nýtingarflokk fari síðan í umhverfismat og venjulegt ákvarðanatökuferli. Þar kunna síðan að verða hindranir eðli málsins samkvæmt. Við erum ekki að taka skipulagslöggjöfina um mat á umhverfisáhrifum o.s.frv. úr sambandi þannig að farið verður í það ferli eftir sem áður. Hið sama gildir um friðlýsingarferlið, það fer fram eins og friðlýsingarferli gerir að jafnaði.
Þegar við ræðum síðan um biðflokkinn er það náttúrlega ákvörðun um að bíða þannig að það (Forseti hringir.) vona ég að skýri nægilega fyrir hv. þingmanni tilvitnað orðalag í Fréttablaðinu í morgun.