140. löggjafarþing — 55. fundur,  13. feb. 2012.

verndun og nýting.

[15:41]
Horfa

umhverfisráðherra (Svandís Svavarsdóttir) (Vg):

Virðulegur forseti. Ég ætla að biðja hv. þingmann að hafa rétt eftir því að það hefur ekki verið eftir mér haft að málinu verði ekki breytt og það fái ekki þinglega meðferð. Þvert á móti fór ég hér yfir að það yrði gert, að sjálfsögðu.

Samkvæmt lögunum munum við hins vegar, og ég bið hv. þingmann að leggja við hlustir, við iðnaðarráðherra sameiginlega, leggja tillögu fyrir þingið. Þar sem það er okkar sameiginlega tillaga væntum við þess að þingið taki því með jákvæðum hætti.

Hv. þingmaður talar nánast eins og hér sé farið fram með ofstopainngrip þegar verið er að vernda alls kyns hluti, eins og hann orðar það, og þá spyr ég hann og það er nokkuð sem hann tekur þá bara með sér heim til sín: Hver á að standa með náttúrunni ef ekki umhverfisráðherrann?