sjálfbærar hvalveiðar.
Já, það er þannig, frú forseti, að samkvæmt vísindavef Háskóla Íslands felst sjálfbær nýting náttúruauðlinda í því að ganga ekki óhóflega á forða náttúrunnar heldur nýta lifandi auðlindir hennar á hófsamlegan hátt þannig að þær nái að endurnýja sig. Einnig er þar fjallað um að í sjálfbærri nýtingu náttúruauðlinda felist að þær skuli nýttar á þann hátt að ekki hljótist af mengun eða að umhverfinu sé spillt.
Ég er sammála hv. fyrirspyrjanda um að mikilvægt er að menn noti hugtök skýrt, þar á meðal þegar þeir bera sér í munn orðið sjálfbærni, sjálfbær þróun eða sjálfbær nýting, þá geri þeir skýrt hvort þeir eru að tala um sjálfbærnina í almennum skilningi eða hvort þeir eru meira sértækt, að leggja til dæmis líffræðilegan skilning í hugtakið. Það kemur að því að hvalveiðar okkar grundvallast á vísindalegri ráðgjöf sem einmitt miðar að þessu, að nýting stofnanna sé sjálfbær og yfir vafa sé hafið að því sé ekki stofnað í hættu með þeirri nýtingu, alveg á sama hátt og við viljum að gildi um aðra nytjastofna sjávar. Ráðgjöfin miðar því að sjálfbærri nýtingu stofnanna í rauninni í líffræðilegum skilningi, þ.e. hvað varðar hlutverk Hafrannsóknastofnunarinnar. Sú ráðgjöf byggir svo aftur á ýmsum rannsóknum og samstarfi við aðila eins og vísindanefnd Alþjóðahvalveiðiráðsins, Norður-Atlantshafssjávarspendýraráðið. Veiðistjórnin byggir þá á því sem þróað hefur verið innan Alþjóðahvalveiðiráðsins, svokölluðu RMP-kerfi og öllu því. Almennt er þetta kerfi talið mjög varfærið, enda umdeilt og þau sjónarmið sterk þar sem það er til umfjöllunar. Ég held því að það sé hafið yfir vafa að mikil varúðarnálgun er notuð þegar menn eru að reyna að fóta sig á því að meta hvaða veiðar væru mögulegar þannig að þær teldust sjálfbærar.
Í öðru lagi spyr fyrirspyrjandi hvort hvalveiðar séu „sjálfbærar“ ef verulegur hluti hvalskrokksins er skilinn eftir í sjó eða urðaður á landi.
Því er til að svara í þessu tilviki, og þá aftur í raun í hinum líffræðilega skilningi sjálfbærnihugtaksins, að við höfum ekki litið svo á að þegar um ónýtanlegan hluta afla væri að ræða væri sjálfbærni fyrir borð borin þó að honum væri fleygt, t.d. innyflum eða einhverjum úrgangi, hvort sem væri af hvalveiðum eða öðru sem með engu móti væri komandi í verð og nýtanlegur. Það telst ekki brottkast þó að slíkum algjörlega ónýtanlegum hlutum sé fargað. En um leið og það hefur sýnt sig eða hægt er að leiða að því líkur að slíkt sé nýtanlegt, dæmi grásleppuhveljan núna, ber að koma með það að landi. Það er held ég sú viðmiðun sem við eigum alltaf að nota hér og eigum ekki að gefa afslátt á því að þá værum við komin í vanda gagnvart meðal annars sjálfbærnihugtakinu.
Kem ég þá að þriðju spurningunni sem snýr að því hvort hvalveiðar geti talist „sjálfbærar“ ef ekki tekst langtímum saman að selja nema lítinn hluta aflans.
Í hinum vistfræðilega skilningi mundi það ekki skipta máli. Það er að sjálfsögðu ekki á hendi stjórnvalda að standa í sölu afurðanna heldur fyrst og fremst í þessu tilviki að tryggja sjálfbæra veiðistjórn, en — og þá segi ég en — ef við horfum á sjálfbærnihugtakið í breiðum almennum skilningi, hinar þrjár meginstoðir, eins og það er stundum talið hvíla á, þ.e. umhverfislegar, félagslegar og efnahagslegar, hlýtur auðvitað að vera ljóst að starfsemin sem slík verður efnahagslega að ganga upp til þess að í þeim skilningi sé sjálfbærninni til haga haldið, hún megi ekki hafa þannig skaðlegar félagslegar eða efnahagslegar afleiðingar þó að hún sé í lagi gagnvart líffræðilegum skilningi sjálfbærnihugtaksins, til verulegra vandræða orðið eða í heild sinni gangi það gegn sjálfbærri þróun og sjálfbærri framvindu. Þetta væri þá mitt svar við því.
Varðandi svo sölu á afurðunum má upplýsa það, sem eru opinberar upplýsingar og allir geta sótt sér, að samkvæmt gögnum frá Hagstofu Íslands voru tekjur af útflutningi hvalaafurða árið 2010 1.296.955.017 kr. og árið 2011 voru þær 1.232.905.336 kr. Samkvæmt útflutningsskýrslum voru umtalsverðar tekjur af útflutningi til hvalaafurða þessi tvö ár. Með því er ekki fullyrt að þessar útflutningstölur séu ávísun á það að varan sé öll endanlega seld. (Forseti hringir.)