heildstæð orkustefna fyrir Ísland.
Virðulegi forseti. Hæstv. ráðherra gefur í skyn með svari sínu að það sé eitthvað óljóst hverjar tekjur ríkisins séu. Í umræðum um fjárlagafrumvarpið er fjallað á mjög ítarlegan hátt um hverjar tekjur ríkissjóðs eru og þær nákvæmlega skilgreindar, en spurningin snerist ekki um það. Spurningin snerist um af hverju talað væri um sjóð í þessu sambandi. Getur það ekki verið auðlindareikningur eða eitthvað slíkt? Sjóður er eitthvað sem geymt er til framtíðar.
Mig langar til að minnast á annað, þ.e. nýtingartímann. Ljóst er að nýtingartíminn sem lagður er til hér, 25–30 ár, er of stuttur, eins og fram kemur í séráliti Gunnars Tryggvasonar, aðstoðarmanns hæstv. ráðherra, sem ég er algerlega sammála. Það eru tvö sjónarmið í gangi og þetta sjónarmið virðist hneigjast í þá átt að um einhvers konar ofnotkun á auðlindinni geti verið að ræða eða að hún verði ekki (Forseti hringir.) nýtt á hagkvæman hátt. Mun hæstv. ráðherra beita sér fyrir því að lagður verði til lengri tími en talað er um í skýrslunni?