heildstæð orkustefna fyrir Ísland.
Virðulegi forseti. Mér fannst umræða hæstv. ráðherra um útsöluprís á raforku á Íslandi vera ansi billeg. Ég vil vitna meðal annars í forstjóra Landsvirkjunar þar sem sagt var að sú stefna sem hafi verið tekin á sínum tíma hafi verið hárrétt og nauðsynleg á þeim tíma sem hún var mótuð. Tækifæri okkar og aðstæður eru allt aðrar í dag.
Það er líka alveg fráleit umræða að halda því fram að við séum kynslóðin sem hafi virkjað nánast alla virkjunarkosti í landinu. En við erum jafnframt kynslóðin sem hefur upplifað kannski hvað mesta framfaraskeið í sögu þjóðarinnar.
Ég vil spyrja hæstv. ráðherra um ofmat á virkjunarkostum: Nú hefur hún rammaáætlun til umfjöllunar. Rammaáætlun er lögð til grundvallar í þeirri skýrslu sem við ræðum í dag. Er hún þar með að segja að ekki sé innihald fyrir þeim tillögum sem eru í rammaáætlun? Er hún að gefa rammaáætlun falleinkunn með þessu, vegna þess að þetta byggir á rammaáætlun?
Mig langar til að inna hæstv. ráðherra enn og aftur eftir því hvenær við megum eiga von á því að rammaáætlun komi inn til þingsins til faglegrar umfjöllunar, hvenær það verði, (Forseti hringir.) og þá kannski hvort það verði í þessum mánuði.