140. löggjafarþing — 57. fundur,  15. feb. 2012.

fundarstjórn.

[16:15]
Horfa

Eygló Harðardóttir (F):

Virðulegi forseti. Í dómnum sem er nú að birtast á vef Hæstaréttar er tekið undir þær veigamiklu athugasemdir sem voru gerðar við vinnslu laga um endurreikning á gengistryggðum lánum. Þar er verið að staðfesta að greiðslutilkynningar og fyrirvaralaus móttaka jafngildi fullnaðarkvittun. Það þykir standa samkvæmt orðum dómsins lánveitanda nær að bera þann vaxtamun sem kann að leiða af þessum ólögmæta gjörningi. Það kemur fram að ekki sé hægt, eins og er gert í lögum nr. 151/2010, að setja almenn lög sem hrófla með afturvirkum hætti við réttarreglum um efni skuldbindinga og greiðslu skulda frá því sem gilti þegar til þeirra (Forseti hringir.) var stofnað. Þetta eru mjög alvarlegar athugasemdir sem koma fram frá Hæstarétti Íslands um vinnubrögð (Forseti hringir.) ríkisstjórnarinnar, um vinnubrögð fyrrverandi (Forseti hringir.) efnahags- og viðskiptaráðherra, Árna Páls Árnasonar.