fundarstjórn.
Virðulegur forseti. Sem kunnugt er tók sá sem hér stendur ekki þátt í afgreiðslu þeirra laga sem hér eru til umræðu á sínum tíma, en þegar fregnaðist af þessu máli uppi í Hæstarétti óskaði ég hinn 11. janúar síðastliðinn eftir áliti frá Fjármálaeftirlitinu og Seðlabanka á því hvaða áhrif dómsniðurstaða í málinu kynni að hafa fyrir fjármálakerfið. Ég hef þegar boðað til fundar í efnahags- og viðskiptanefnd klukkan fimm, eða eftir innan við klukkustund. Þangað hafa verið boðaðir fulltrúar efnahags- og viðskiptaráðuneytisins, fulltrúar Seðlabanka og Fjármálaeftirlits. Þar munum við þingmenn allra flokka fara yfir málið.
Það er ljóst að dómurinn er ívilnandi. Það er ánægjulegt. Hann er ívilnandi fyrir skuldugt fólk sem greitt hefur af erlendum lánum sínum síðustu árin. (Gripið fram í: Er þetta …?) En um leið (Gripið fram í.) má fagna því að (Gripið fram í: Leyfðu þingmanninum að tala.) með dómnum er þeim síðustu óvissuatriðum (Forseti hringir.) í gengislánamálunum sem uppi voru eytt.